Fara í efni

Íþrótta- og tómstundanefnd

453. fundur 13. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:00 fundarherbergi sundlaugar

453. (20.) fundur Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness var haldinn fimmtudaginn 13. febrúar 2026 kl. 8:15 í fundarherbergi sundlaugar.

Mættir voru: Örn Viðar Skúlason, Guðmundur Helgi Þorsteinsson, Inga Þóra Pálsdóttir og Ólafur Finnbogason. 

Forföll: Guðmundur Gunnlaugsson.

Ritari fundar: Haukur Geirmundsson íþróttafulltrúi.

Dagskrá:

1. Mnr. 2026010329 – Kjör Íþróttamanns Seltjarnarness 2025 í karla og kvennaflokki.

Alls bárust 9 tilnefningar í 7 íþróttagreinum. Fulltrúar íþrótta- og tómstundanefndar fóru yfir innsend gögn og völdu tvo íþróttamenn í afar jöfnum hóp.

Íþróttamaður Seltjarnarness 2025 í karla og kvennaflokki eru Aðalsteinn Karl Björnsson júdómaður og Eir Chang Hlésdóttir frjálsíþróttakona.

2. Mnr. 2026010329 – Breyting á reglum um kjör Íþróttamanns Seltjarnarness.

Formaður kom með breytingatillögu á reglunum er varðar verðlaunaveitingu til landsliðsfólks á Seltjarnarnesi.

Samþykkt að í auglýsingu um tilnefningar verði einnig auglýst eftir ábendingum frá almenningi um landsliðsfólk sem stundar íþróttir annarsstaðar en á Seltjarnarnesi.

3. Mnr. 2026020049 – Styrkbeiðni úr afreksmannasjóð.

Arnfríður Auður Arnarsdóttir sækir um styrk úr afreksmannasjóði.

Því miður er ekki hægt að verða við umsókninni.

4. Mnr. 2026020086 – Farið yfir aðsóknar- og tekjutölur sundlaugar 2025.

Tekjur eru 8% hærri árið 2025 en 2024 og aðsókn stendur nokkurn veginn í stað. Miðað við að Vesturbæjarlaugin var mikið lokuð á árinu 2025 og veðrið í vetur búið að vera einstaklega gott þá hefðu aðsóknartölur átt að vera hærri. Líkleg skýring er vegna styttri opnunartíma frá september.

Vegna mikillar óánægju bæjarbúa með styttingu opnunartímans er það von nefndarmanna að hún sé aðeins tímabundin.

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:00.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?