Fara í efni

Íþrótta- og tómstundanefnd

454. fundur 22. apríl 2026 kl. 08:15 - 10:30 fundarherbergi sundlaugar

454. (21.) fundur Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness var haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2026 kl. 8:15 í fundarherbergi sundlaugar.

Mættir voru: Örn Viðar Skúlason, Inga Þóra Pálsdóttir, Ólafur Finnbogason og Guðmundur Gunnlaugsson.

Ritari fundar: Haukur Geirmundsson íþróttafulltrúi.

Dagskrá:

1. Mnr. 2026040222 – Málefni íþróttafélagsins Gróttu.

Fulltrúa Gróttu mættu á fundinn og fóru yfir málefni félagsins.

Nefndarmenn þökkuðu fulltrúum Gróttu fyrir greinagóða yfirferð og lýstu ánægju yfir að málefni félagsins eru að komast á rétta braut eftir nokkra óvissu í starfsmannamálum síðustu misseri. Endurnýjun rekstrarsamnings við Gróttu er í undirbúningi.

2. Mnr. 2026040223 – Styrkbeiðni fimleikadeildar.

Vegna rekstrarörðuleika fimleikadeildar hefur hún safnað upp rekstrarskuldum síðustu misseri.

ÍTS leggur til að afgreiðsla þessarar beiðni fylgi gerð nýs rekstrarsamnings við félagið.

3. Mnr. 2026040250 - Samstarfssamningur á milli Golfklúbbs Ness (NK) og Seltjarnarnesbæjar (SB).

Komið er að endurnýjun samningsins. Barna og unglingastarf golfklúbbsins hefur vaxið gífurlega á undanförnum árum, faglegt starf farið mikið uppávið og fjöldi barna aukist.

ÍTS leggur til að hækka styrkinn til Nesklúbbsins í ljósi þróunar verðlags og fjölgunar iðkenda.

4. Mnr. 2026040224 – Styrkbeiðni vegna ferðar til Finnlands.

3.flokkur karla í knattspyrnu er á leið í æfinga og keppnisferð til Finnlands.

ÍTS samþykkir 140 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

5. Mnr. 202604225 – Styrkbeiðni vegna ferðar til Englands.

4.fl.karla og kvenna í knattspyrnu eru á leið í æfinga og keppnisferð til Englands.

ÍTS samþykkir 280 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

6. Mnr. 2026040226 - Styrkbeiðni vegna ferðar til Þýskalands.

3.fl.karla í handknattleik eru á leið í æfinga og keppnisferð til þýskalands.

ÍTS samþykkir 140 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

7. Mnr. 2026040227 – Styrkbeiðni vegna ferðar til Spánar.

Meistaraflokkar karla og kvenna fóru í æfinga og keppnisferð til Spánar.

ÍTS samþykkir 280 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

8. Mnr. 2026040228 – Styrkbeiðni knattspyrnudeildar Kríu.

Knattspyrnudeild Kríu óskar eftir rekstrarstyrk vegna þátttöku félagsins í deildar og bikarkeppnum sumarsins 2026.

Samþykkt að veita Kríu knattspyrnudeild kr. 350 þúsund króna styrk.

9. Mnr. 2026040229 – Styrkbeiðni – Ösp íþróttafélag.

Íþróttafélagið Ösp óskar eftir styrk vegna 2 þátttakenda í Special Olympics Idrottfestival í Hróarskeldu í vor. Þær heita Erna María Styrmisdóttir sem keppir í knattspyrnu og Nína Margrét Ingimarsdóttir sem keppir í nútímafimleikum.

Samþykkt að veita þeim kr. 30 þúsund króna styrk hvorri um sig eða samtals kr. 60 þúsund.

10. Mnr. 2060040230 – Styrkbeiðni vegna ferðar Nesklúbbsins til Spánar.

Meistaraflokkur og yngri iðkendur Nesklúbbsins eða samtals 35 iðkendur fóru í æfingaferð til Spánar.

ÍTS samþykkir kr. 280 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

11. Mnr. 2026040231 – Styrkbeiðni vegna ferðar til Andorra.

Benedikt Baldur Tryggvason fór í ferð með Blaksambandi Íslands og keppti í strandblaki fyrir hönd Íslands.

ÍTS samþykkir 30 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

12. Infra – sauna í sundlaug Seltjarnarness – Mnr. 2026040233.

Mikill áhugi er á að sett verði upp infra – sauna í sundlaug Seltjarnarness. Þess má geta að flestar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu hafa sett upp slíkar saunur og eru vinsældirnar mjög miklar. Óskað var eftir tilboðum frá fjjórum aðilum til að setja upp slíka saunu í gamla kennaraherberginu gegnt útibúningsklefunum. Aðeins eitt tilboð barst frá Sauna.is.

ÍTS mælir eindregið með að þetta verði skoðað nánar. Í ljósi þess að búið er að setja upp slíka klefa í flestum sundlaugum á höfuðborgarsvæðunum og ef Sundlaug Seltjarnarness vill vera samkeppnishæf liggur beint við að setja upp slíkan klefa. Því mælir ÍTS eindregið með að ráðist verði í að setja upp slíkan klefa við sundlaugina.

13. Vorlokun sundlaugar og opnunartímar.

Árleg vorlokun sundlaugar verður 11.-15.maí n.k. þar sem farið verður í viðhald og þrif. Í framhaldinu mun sundlaugin opna aftur laugardaginn 16.maí með nýjum opnunartímum. Farið verður aftur í gamla opnunartímann eins og var áður en honum var breytt.

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:30.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?