Fara í efni

Íþrótta- og tómstundanefnd

455. fundur 17. september 2026 kl. 08:15 - 10:15 fundarherbergi sundlaugar

455. (22.) fundur Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness var haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2026 kl. 8:15 í fundarherbergi sundlaugar.

Mættir voru:  Dagbjört S. Oddsdóttir (formaður), Pétur Már Harðarson, Elísabet Ingunn Einarsdóttir, Kristín Edda Óskarsdóttir og Jóhanna S. Sveinsdóttir.

Gestir: Fulltrúar íþróttafélagsins Gróttu.

Ritari fundar: Haukur Geirmundsson íþróttafulltrúi.

Dagskrá:

1. Mnr. 2026090212 – Málaflokkur 06 – erindisbréf og reglugerðir.

Erindisbréfið lagt fram ásamt styrkjareglum ÍTS.

Erindisbréf og reglugerðir ÍTS lagðar fram.

2. Mnr. 2026090213 – Síðasta fundargerð ÍTS.

Fundargerðin lögð fram til glöggvunar nefndarmanna um síðustu málefni ÍTS.

Fundargerðin lögð fram.

3. Mnr. 2026090214 – Málefni íþróttafélagsins Gróttu.

Fulltrúar Gróttu mættu á fundinn og fóru yfir helstu málefni félagsins.

Nefndarmenn ÍTS þökkuðu greinargóða og upplýsandi yfirferð um málefni félagsins og stöðu þess. Mikil vinna hefur verið innt af hendi til á undanförnum misserum til þess að koma rekstri og utanumhaldi félagsins í rétt horf. Nefndarmenn binda miklar vonir við að með nýju fólki og breyttu skipulagi skapist enn betri grundvöllur fyrir faglegu og markvissu starfi félagsins.

4. Mnr. 2026090215 – Handbækur Gróttu um keppnisferðir, utanumhald yngri flokka og hlutverk barna- og unglingaráðs, yfirþjálfara og foreldraráðs.

Formaður kynnti hugmynd um handbækur sem nýst gætu barna- og unglingaráði, þjálfurum og foreldrum. Fulltrúar Gróttu voru viðstaddir þessa umræðu og rætt var um mikilvægi þess að Grótta setji sér skýrar og aðgengilegar handbækur um framkvæmd keppnisferða, utanumhald yngri flokka og hlutverk og ábyrgð barna- og unglingaráðs, þjálfara og foreldraráðs. Slíkar handbækur væru mikilvægt tæki til að skýra verklag, ábyrgð og upplýsingaflæði innan félagsins og stuðla að samræmdum og faglegum vinnubrögðum. Íþróttastjóri Gróttu lýsti yfir vilja til að taka gerð handbókanna áfram og tryggja að vinnunni verði fylgt eftir. Áhersla var lögð á að handbækurnar verði að lifandi verkfæri sem nýtist í daglegu starfi.

Nefndarmenn fagna því að ráðist verði í þessa vinnu og telja að skýrt verklag og afmörkuð ábyrgðarsvið muni styrkja utanumhald og starfsemi félagsins, einkum í tengslum við yngri iðkendur og aðkomu foreldra.

5. Mnr. 2026090216 – Styrkbeiðni Gróttu vegna líkamsræktar.

Félagið óskar eftir styrk frá ÍTS vegna endurnýjunar á búnaði líkamsræktaraðstöðu félagsins.

ÍTS óskar eftir nánari uppýsingum um rekstur aðstöðunnar, þar með talið sundurliðun á helstu tekjum og gjöldum.

6. Mnr. 2026090218 - Styrkbeiðni fimleikadeildar Gróttu.

Meistarahópur fimleikadeildar óskar eftir styrk vegna keppnisferðar á alþjóðlegt mót í Svíþjóð.

ÍTS samþykkir 140 þúsund króna styrk vegna ferðarinnar.

7. Mnr. 2026090219 – Aðsóknar- og tekjutölur sundlaugar.

Liðnum var frestað til næsta fundar.

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:15.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?