167. fundur Menningarnefndar Seltjarnarnesbæjar haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofu Seltjarnarness, þriðjudaginn 14. apríl 2026 kl. 8:30
Mættir: Þórdís Sigurðardóttir formaður, Inga Þóra Pálsdóttir, Þröstur Þór Guðmundsson, Áslaug Eva Björnsdóttir og Halla Helgadóttir.
Fundargerð ritaði: María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og samskiptasviðs.
Dagskrá:
1. 2026030387 – 17. júní 2026
Sviðsstjóri kynnti drög að fyrirhugaðri dagskrá á vegum Seltjarnarnesbæjar á 17. júní en gert er ráð fyrir því að hátíðarhöldin fari fram með hefðbundnum hætti á Seltjarnarnesi með skrúðgöngu og dagskrá í Bakkagarði.
Menningarnefnd líst vel á fyrirhugaðar tillögur sem fengu umræðu og sviðsstjóra falin nánari útfærsla á hátíðardagskrá 17. júní.
2. 2026040134 – Vetrar- og vordagskrá bókasafnsins
Sviðsstjóri upplýsti um það helsta í starfsemi og viðburðadagskrá bókasafnsins það sem af er ári og er framundan næstu vikurnar.
Menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með starfsemi bókasafnsins og hvetur starfsfólk til áframhaldandi góðra starfa.
3. 2026010438 – Sirkuslistasýning, umsókn um menningarstyrk
Lögð fram umsókn um styrkbeiðni.
Menningarnefnd felur sviðsstjóra að taka ákvörðun um framhaldið í tengslum við menningarstarf sumarsins.
4. 2026030027 – Sirkusananas sirkussýning, umsókn um menningarstyrk
Lögð fram umsókn um styrkbeiðni.
Menningarnefnd felur sviðsstjóra að taka ákvörðun um framhaldið í tengslum við menningarstarf sumarsins.
5. 2026030330 – Karlakórinn Esja – umsókn um menningarstyrk
Lögð fram umsókn um styrkbeiðni.
Menningarnefnd þakkar fyrir áhugaverða umsókn en sér sér ekki fært að styrkja verkefnið og felur sviðsstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
6. 2024120050 – Trúarbrögðin listaverk – viðgerð
Sviðsstjóri upplýsti um gang mála varðandi umfangsmikla viðgerð á listaverkinu Trúarbrögðin.
7. 2026040007 – Almyrkvi 12. ágúst 2026
Sviðsstjóri ræddi undirbúning vegna Almyrkvans sem verður þann 12. ágúst nk.
Fundi slitið: 09:59