Fara í efni

Menningarnefnd

168. fundur 22. september 2026 kl. 16:00 - 17:40 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

168. fundur Menningarnefndar Seltjarnarnesbæjar haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofu Seltjarnarness, þriðjudaginn 22. september 2026 kl. 16:00

Mættir:  Þórdís Sigurðardóttir formaður, Elísabet Einarsdóttir, Björn Jóhannesson, Guðrún Jónsdóttir og Halla Helgadóttir.

Fundargerð ritaði: María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs.

Dagskrá:

1. 2026040134 – Sumar- og haustdagskrá bókasafnsins

Sviðsstjóri upplýsti um það helsta í sumardagskrá bókasafnsins en aðsókn á safnið var mikil. Viðburðardagskrá haustsins er nú komin á fullt og fer vel af stað.

Sviðsstjóri fór einnig yfir aðra stóra viðburði sumarins á Seltjarnarnesi þ.e. 17. júní, Almyrkvann 12. ágúst og Fjölskyldudaginn í Gróttu sem heppnuðust vel og voru vel sóttir.

Menningarnefnd þakkar sviðsstjóra fyrir vel skipulagt og viðburðaríkt menningarsumar sérstaklega skemmtilega viðburði fyrir fjölskylduna á bókasafninu sem og metnaðarfulla dagskrá haustsins. Menningarnefnd telur mikilvægt að standa vörð um öflugt starf á bókasafninu sem okkar menningarmiðstöð.

2. 2024120050 – Trúarbrögðin listaverk – yfirstandandi viðgerð
Sviðsstjóri sagði frá gangi mála með yfirstandandi viðgerð á útilistaverkinu Trúarbrögðin eftir Ásmund Sveinsson. Verkið var mjög illa farið og viðgerð á því umfangsmeiri en áætlað var í upphafi, viðgerðin hefur hefur þó gengið vel og búið að meta hvað þarf til að klára verkið. Stöpullinn sjálfur er að mati fagaðila mjög illa farinn og óvissu háð hversu slæmt ástandið er innan verðu, skýrist ekki fyrr en viðgerð hefst.

Menningarnefnd er umhugað um að viðgerð á þessu mikilvæga listaverki og kennileiti bæjarins gangi sem best fyrir sig og felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir.

3. 2026090230 – Selkórinn, endurnýjun samstarfssamnings 2027-2029

Lögð fram til kynningar beiðni Selkórsins um endurnýjun samstarfssamnings fyrir árin 2027-2029. Samstarf Selkórsins og Seltjarnarnesbæjar hefur verið fastur þáttur í starfsemi kórsins og bæjarlífinu.

Menningarnefnd felur sviðsstjóra að óska eftir nánari upplýsingum í takt við umræður á fundinum.

4. 2026090248 – Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2027

Tekin umræða um bæjarlistamann næsta árs og að auglýsa eftir umsóknum um þá heiðursnafnbót sem Menningarnefnd veitir.

Menningarnefnd felur sviðsstjóra að auglýsa eftir umsóknum og tilnefningum um bæjarlistamann eins og reglur kveða á um.

5. 2026090001 – Eiðisgala á Eiðistorgi á Óperudögum – umsókn um menningarstyrk

Lögð fram umsókn um styrk til að halda tónleika á Eiðistorgi á tónlistarhátíðinni Óperudagar sem fram fer víða á höfuðborgarsvæðinu í október.

Menningarnefnd þakkar fyrir umsóknina og tekur jákvætt í umsóknina og felur sviðsstjóra að leggja til fjárhæð við bæjarráð.

6. 2026090223 – Sígild jól tónleikar í Seltjarnarneskirkju - umsókn um menningarstyrk

Lögð fram umsókn um styrk vegna jólatónleika „Sígild jól“ í Seltjarnarneskirkju í desember.

Menningarnefnd þakkar fyrir umsóknina og lýsir ánægju sinni yfir því að velja Seltjarnarneskirkju sem tónleikastað en menningarnefnd sér sér ekki fært að styðja verkefnið í ár.

7. 2026090249 – Innsent erindi xS um málefni félagsheimilisins

Lagt fram erindi frá fulltrúa Samfylkingar og óháðra um málefni félagsheimilisins og aðkomu menningarnefndar að mótun stefnu og áætlunum um uppbyggingu þess.

Málið var tekið fyrir og fékk umræðu innan nefndarinnar og tekið undir mikilvægi félagsheimilis Seltjarnarness sem miðstöð menningar- og félagsstarfs í bænum.

 

Fundi slitið kl.: 17.40.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?