Fara í efni

Skipulags- og umferðarnefnd

20. september 2022

129. fundur skipulags- og umferðarnefndar haldinn í fundarsal skrifstofu skipulags- og umhverfissviðs Austurströnd 1, þriðjudaginn 20. september, 2022 kl. 08:06

Nefndarmenn:
Svana Helen Björnsdóttir, formaður
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður
Örn Viðar Skúlason, aðalmaður
Karen María Jónsdóttir, aðalmaður
Bjarni Torfi Álfþórsson, aðalmaður

Starfsmenn:
Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri

Fundargerð ritaði: Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

Dagskrá:

1. 2020040062 - Stefnumörkun varðandi gististarfsemi og gististaði fyrir íbúðabyggð

Lagt fram minnisblað Alta, dagsett 2. september 2022, vegna breytinga á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 varðandi takmarkanir á gistiþjónustu. Málið var áður á dagskrá 128. fundar skipulags- og umferðarnefndar 6. september sl. þar sem málinu var frestað.

Skipulags- og umferðarnefnd frestar málinu og vísar málinu til umsagnar skipulagsfulltrúa og lögmanns Seltjarnarnesbæjar.


2. 2022090054 - Látraströnd 54 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis - gististað að Látraströnd 54

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, dagsett 5. september 2022, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að Látraströnd 54.

Með vísan til niðurstöðu úrskurðar menningar- og viðskiptaráðuneytis frá 29. ágúst 2022 er umsækjanda veitt tækifæri til þess að tjá sig um fyrirliggjandi umsögn Landslaga frá 8. mars 2021 áður en umsagnarbeiðni sýslumanns verður svarað. Óskað er eftir að andmæli liggi fyrir innan 10 daga frá dagsetningu bréfs þar um. Í kjölfarið verður málið tekið fyrir að nýju og afgreitt m.t.t. fyrirliggjandi umsagnar og andmæla umsækjanda berist þau.


3. 2021060049 - Skólabraut 4 - Fyrirspurn um framkvæmdir

Lögð fram skrifleg yfirlýsing íbúa Skólabrautar 4, dagsett 16. september 2022, um færslu á geymsluskúr á lóðamörkum Skólabrautar 4 og 6.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita íbúum að Skólabraut 4 frest til 1. júní til að fjarlægja eða færa skúr á lóðamörkum Skólabrautar 4 og Skólabrautar 6.


4. 2022090018 - Nesbali 36 - umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram frekari gögn, málið var áður á dagskrá 128. fundar skipulags- og umferðarnefndar 6. september sl. þar sem málinu var frestað.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir ekki, sem aðliggjandi lóðarhafi, fyrirhugaðar framkvæmdir á lóðarmörkum Nesbala 36 og göngustígs í eigu Seltjarnarnesbæjar.


5. 2022080251 - Umferðaröryggisáætlun Seltjarnarnesbæjar - endurskoðun 2022

Lögð fram verkefnislýsing VSÓ ráðgjafar, september 2022, vegna endurskoðunar á Umferðaröryggisáætlun Seltjarnarnesbæjar.

Skipulags- og umferðarnefnd felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að afla tilboða frá amk. þremur aðilum í gerð umferðaröryggisáætlunar og leggja fyrir næsta fund.


6. 2021120139 - Breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Valhúsahæð - Skólabraut 10

Lagður fram tölvupóstur Sigurðar Guðmundssonar, dagsettur 1. september 2022, vegna breytinga á deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis.

Skipulags- og umferðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnu erindi og leiðbeina með kærufresti.


Fundi slitið: 09:50

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?