Mætt: Svana Helen Björnsdóttir, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Hákon Jónsson og Örn Viðar Skúlason.
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. 2025110219 – Tjarnarstígur 3 – óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna nýs bílskúrs
Sótt er um leyfi til þess að auka nýtingarhlutfall lóðarinnar Tjarnarstígur 3-5 svo byggja megi bílageymslu (mhl. 02) á lóðarhluta Tjarnarstígs 3.
Höfundur leggur bæði fram teikningar sem sýna hinn fyrirhugaða bílskúr og uppdrátt af óverulegri deiliskipulagsbreytingu lóðarinnar þar sem nýtingarhlutfall er aukið úr 0,5 í 0,54
Bílageymslan verður á einni hæð, tvískipt fyrir íbúðir Tjarnarstígs 3. Tvær innkeyrsluhurðir og tvær inngangshurðir verða á byggingunni. Heildarstærð (brúttó) mhl. 02 verður 75,1 m²
Tillagan er unnin af frumkvæði eiganda í Tjarnarstíg 3 en fyrir liggur samþykki allra skráðra eiganda Tjarnarstígs 5 en lóðinn er sameiginleg fyrir Tjarnarstíg 3 og 5.
Nýtingarhlutfall er 0,5 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en verður 0,54 við breytinguna sem er nauðsynlegt svo nýta megi byggingarreit fyrir bílskúr.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir erindið. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna erindið í samræmi við 2. málsgrein 43.og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Tjarnarstígur 1, 2, 4 og 7. Ennfremur Tjarnarból 8, 10 og 12.
2. 2025110066 – Steinavör 8 - byggingarleyfisumsókn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt, 381 fermetra einbýlishús á lóðinni Steinavör 8. Uppdrættir sem lagðir eru fram eru í samræmi við nýlega grenndarkynningu. Ekki komu athugasemdir við grenndarkynningu hennar. Hámarks nýtingarhlutfalli lóðarinnar var breitt úr 0,4 í 0,48. Nýtingarhlutfall samkvæmt tillögunni verður 0,47. Fyrir liggur greinargerð frá Vegagerðinni um lágmarks kótahæð neðstu gólfplötu sem arkitektinn telur sig hafa uppfyllt. Á uppdráttum er sýndur er sjóvarnargarður framan við lóðina.
Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráform svalalokanna í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Seltjarnesbær áréttar við húsaeigandann að um þekkt flóðasvæði er að ræða sem þýðir að komið getur til skerðingar á bótrétti frá Náttúruhamfartryggingum Íslands við hugsanlegt tjón, og bendir í því sambandi á 16. grein laga um Náttúruhamfaratryggingar Íslands nr. 55/1992.
Húseigandi skal sjá um að gera sjóvarnargarð í samræmi við aðaluppdrætti og bera allan kostnað við gerð hans. Skal uppbygginu hans að fullu lokið áður en lokaúttekt hússins fer fram.
3. 2026010431 - Náttúruminjasafn Safnatröð 5 – breyting áður samþykktum uppdráttum
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum uppdráttum af Safnatröð 5. Húsið hefur tekið nokkrum breytingum meðan á byggingu þess stóð enda verður önnur starfsem í því en áætlað var í upphafi.
Helstu breytingar á uppdráttum eru meðal annars þessar:
- Vörulyfta breytist í lyftu til fólksflutninga.
- Hætt er við skyggni og skjólvegg við verönd utanhúss og hurð bætt við á suðurhlið.
- Salerni og bað fyrir starfsfólk verður aðskilið frá salernum fyrir almenning.
- Vikið er frá ákvæðum byggingarreglugerðar um lágmarksfjölda salerna og eru færð rök fyrir ástæðu þess.
Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð.
4. 2025090145 – Unnarbraut 14 – óveruleg deiliskipulagsbreyting eftir kynningu
Grenndarkynningu á óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem fjallar um tilfærslu byggingarreits við Unnarbraut 14 er nú lokið. Athugasemd barst frá nágrönnum sem telja að verið sé að breyta lóðarmörkum gagnvart lóð sinni sem er við Melabraut. Athugasemdin er nokkuð ítarlega sett fram í 3 liðum og samantekt, þar sem vísað er í stjórnarskrá, stjórnsýslulög og skipulagslög.
Deiliskipulagið er unnið á grunni gildandi deiliskipulags og eina breytingin sem er gerð, er að byggingarreitur er færður til á uppdrætti. Því mætti segja að mótmælin séu byggð á misskilningi.
Til að taka af öll tvímæli um að ekki sé verið að breyta lóðarmörkum með tillögunni hefur skipulagshöfundur bætt inn eftirfarandi texta: „Tillagan hefur ekki gildi hvað varðar lóðamörk eða eignarhald á landi og fjallar eingöngu um tilfærslu á byggingarreit. Engar breytingar eru gerðar á lóðarmörkum frá gildandi deiliskipulag með breytingu þessari.
Komi fram munur á lóðarmörkum á þessum uppdrætti og gildandi deiliskipulagi, gilda lóðamörk sem eru sýnd á gildandi deiliskipulagsuppdrætti.“
Afgreiðsla: Skipulagsnefnd telur að ekki sé ástæða til að taka frekar tillit til athugasemdarinnar eða gera frekari breytingar á tillögunni og telur að komið hafi verið til móts við athugasemd nágranna með þeim skýringum sem nú hefur verið bætt við.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010 með því að birta auglýsingu um gildistöku tillögunnar í B-deild stjórnartíðinda.
5. 2026020109 – Fyrirspurn um heimild til að gera gistiheimili að Austurströnd 8, 1. hæð
Borist hefur fyrirspurn frá eiganda húsnæðis á 1. hæð að Austurströnd 8 um það hvort heimilað verði að gera gistiheimili í húsnæðinu. Húsnæðið er á reit M2 sem er skilgreindur sem miðsvæði í aðalskipulagi. Á miðsvæði er blönduð starfsemi heimiluð, meðal annar gististarfsemi af ýmsum toga.
Afgreiðsla: Nefndin er jákvæð gagnvart erindinu en bendir fyrirspyrjanda á að leggja fram byggingarleyfisumsókn þar sem húsnæðið er brunahannað. Ennfremur óskar nefndin eftir að afstaða húsfélagsins liggi fyrir.
6. 2026020110 - Nesvegur 103 - fyrirspurn um garðskála
Húseigendur við Nesveg 103 leggja fram fyrirspurn hvort breyta megi byggingarreit svo þau geti byggt garðaskála sem myndi ná alveg að lóðarmörkum sem jafnframt eru á sveitarfélagsmörkum Seltjarnarness og Reykjavíkur. Sólskálin rúmast inna hámarks nýtingarhlutfalls lóðarinnar sem er 0,4 en það var hækkað með deiliskipulagsbreytingu fyrir örfáum árum.
Afgreiðsla: Frestað. Skipulagsfulltrúa falið að afla nánari upplýsinga fyrir næsta fund.
7. 2026010309 – Tillaga frá íbúa vegna umferðarhraða við Lindarbraut
Íbúi við Lindarbraut leggur fram nokkuð ítarlega tillögu um aðgerðir til að draga úr hraðakstri og auka öryggi gangandi vegfarenda við Lindarbraut. Hann bendir á alvarlegt öryggisvandamáli við Lindarbraut. Bílar keyri of hratt um götuna, oft langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Hann segir að þetta eigi sérstaklega við um Strætó, sem keyri á óhóflegum hraða. Á götunni eru bílastæði beggja vegna, sem takmarka sýn og skapa hættu þegar gangandi vegfarendur, sérstaklega börn, fara yfir götuna.
Hann biður um að þessi tillaga verði tekinn fyrir sem forgangsmál og leggur til tvær aðgerðir:
-Uppsetning þrengingar með eyjum á miðri Lindarbraut, þannig að aðeins einn bíll komist í gegn í einu. Þetta myndar hraðahindrun og hægir á umferð. Með tillögunni fylgir mynd sem sýnir þetta fyrirkomulag
- Lækkun hámarkshraða úr 40 niður í 30 kílómetra á klukkustund.
Afgreiðsla: Nefndin felur skipulagsfulltrúa að skoða málið í tengslum við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar.
8. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í febrúar
Verkefnalistinn hefur nú verið birtur á heimasíðu bæjarins. Verkefnum þokar jafnt og þétt áfram og eitt nýtt verkefni sem komið er á listann er að fest hafur verið kaup á öryggisgirðingu til að nota við Plútóbrekku þegar skíða og sleðafæri er. Girðingin er áþekk þeim sem notaðar eru á skíðasvæðum og verður einungis höfð uppi þegar snjór er í bænum.
Afgreiðsla: Listinn lagður fram og ræddur.
9. 2026020111 – Hraðamælingar úr broskarlaskiltum
Lagðar fram hraðamælingar úr broskarlaskiltum við Norðurströnd, en skiltin eru með sjálfvirkri upptöku og var nýlega lesið úr upptökubúnaðinum.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
10. 2024040061 – Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 21. desember
Lagðar fram skýrslur um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 21. desember 2025. Eitt slys varð á Seltjarnarnesi á þessu tímabili. Eftirfarandi kemur fram í skýrslu frá lögreglu:
„Þriðjudagur 30.12. 2025 kl. 18:37 varð umferðarslys á Norðurströnd á móts við Látraströnd. 3 ökutæki áttu hlut að máli. óhappið varð með þeim hætti að öllum bifreiðunum var ekið vestur Norðurströnd á sömu akrein. Á móts við Látraströnd er gangbraut yfir Norðurströnd. Fremsta ökutækið stöðvaði vegna hlaupara sem hljóp yfir gangbrautina. Við það var aftasta ökutækinu ekið aftan á það ökutæki sem var nr. tvö í röðinni sem kastaðist á þá bifreið sem hafði upphaflega stöðvað við gangbrautina. Ökumaður úr einni bifreiðinni fluttur á bráðamóttöku Landspítala með sjúkrabifreið með áverka á höfði.“
Afgreiðsla: Skýrsla lögreglu lögð fram og rædd.
11. 2024100151 – Fundartími marsfundar nefndarinnar
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 19. mars sem fellur á fimmtudag. Fundartími klukkan 8:15-10:00. Er þetta í samræmi við það sem nefndin hefur áður ákveðið að stefnt skuli að.
Afgreiðsla: Samþykkt að næsti fundur verði þann 19. mars 2026, kl 8:15.
Fundi slitið kl. 9:33