Mætt: Svana Helen Björnsdóttir, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Dagbjört Oddsdóttir, Garðar Svavar Gíslason, Karen Marí Jónsdóttir og Hákon Róbert Jónsson.
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. 2025100188 – Steinavör 6 - byggingarleyfisumsókn
Nýlega var gerð óveruleg breyting á deiliskipulagi lóðarinnar þar sem nýtingarhlutfall var aukið úr 0,4 í 0,5. Var breytingin kynnt fyrir nágrönnum án þess að athugasemd bærist.
Núna eru lagðar fram teikningar Jóns Davíðs Ásgeirssonar arkitekts af viðbygginu við húsið.
Um er að ræða 10,4 fermetra viðbót við anddyri sem kemur undir núverandi þak hússins, þar sem fyrir er svokallað B-rými.
Húsið er 524 fermetrar fyrir breytinguna samkvæmt skráningu hjá Landskrá en er í raun 537,9 fermetrar og verður 548,3 fermetrar. Nemur stækkunin 4,6 % miðað við skráða fermetra.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir áformin og beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
2. 202408085 – Nesbali 50 - byggingarleyfisumsókn
Sótt er um leyfi til að byggja 81,9 fermetra við húsið Nesbali 50 í samræmi við nýlega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0,28 fyrir breytinguna en veður 0,4 við hana. Einnig eru gerðar ýmsar endurbætur á húsinu eins og að setja rennihurð, síkka glugga á norðurhlið, breyta innréttingum og breyta burðarkerfi lítillega.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir áformin og beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
3. 2026030079 – Erindi um sánavagn við björgunarsveitarhús
Fyrirtækið Heildræn heilsa óskar eftir leyfi til að setja snyrtilegan sánavagn sunnan við björgunarsveitarhúsið. Umhverfisnefnd fjallaði nýlega um málið á fundi og tók jákvætt í áformin og vísaði málinu til skipulags- og umferðanefndar. Skipulagsfulltrúi hefur óskað eftir umsögn frá björgunarsveitinni sem er húseigandi ásamt bæjarfélaginu en það á 40% hlut í húsinu.
Í erindinu segir að hugmyndin sé að starfsemin verði falin fyrir íbúum „bakvið“ björgunarsveitarhúsið. Þar segir líka að þetta svæði sé fullkomið fyrir svona sánu þar sem fólk gæti auðveldlega gengið niður rampinn að höfninni og kælt sig í sjónum á milli „setta“.
Afgreiðsla: Frestað. Nefndin er jákvæð gagnvart erindinu en leggur áherslu á að umsögn Björgunarsveitarinnar Ársæls og hafnarstjórans þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin.
4. 2026030080 – Miðsvæði - uppbygging á óbyggðum reitum í eigu bæjarins
Skipulagsfulltrúi leggur fram nokkrar hugmyndir sem komið hafa fram um uppbyggingu á tveim lóðum í eigu bæjarfélagsins, önnur er meðfram Nesvegi við Eiðistorg og hinn við Austurströnd þar sem Orkan hefur rekið bensínstöð um nokkurt skeið.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt. Skipulagsfulltrúa falið að boða nefndina til vinnufundar um málið.
5. 2026030081 – Austurströnd 5 - Breyting innanhúss vegna golfherma á 1. hæð
Lagðir fram uppdrættir af áður útfærðri breytingu á 1. hæð hússins Austurströnd 5.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir breytinguna og beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja hana í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð.
6. 2026030082 - Sjóvarnir við bæinn
Lögð fram skýrsla frá 2011 um sjóvarnir. Á blaðsíðu 126 er fjallað um Seltjarnarnes og það sem helst var á döfinni á þeim tíma. Einhver af verkefnunum sem fjallað er um voru framkvæmd en önnur ekki. Einnig er lagt fram kort sem sýnir lágsvæði við strendur bæjarins á grafískan hátt.
Afgreiðsla: Nefndin leggur áherslu á að unnið verði endurmat á ástandi sjóvarna á Seltjarnarnesi. Formanni nefndarinnar ásamt skipulagsfulltrúa falið að hefja samtal við hlutaðeigandi stjórnvöld.
7. 2026020110 - Nesvegur 103 - fyrirspurn um garðskála
Húseigendur við Nesveg 103 lögðu fram fyrirspurn á síðasta fundi um það hvort breyta mætti byggingarreit svo þau gætu byggt garðaskála sem myndi ná alveg að lóðarmörkum. Lóðarmörkin eru jafnframt sveitarfélagsmörk Seltjarnarness og Reykjavíkur. Sólskálinn rúmast inna hámarks nýtingarhlutfalls lóðarinnar sem er 0,4 en það var hækkað með deiliskipulagsbreytingu fyrir örfáum árum. Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar og skipulagsfulltrúa falið að afla nánari upplýsinga.
Síðan hefur skipulagsfulltrúi hefur rætt þetta mál við kollega sinn hjá Reykjavík.
Afgreiðsla: Frestað.
8. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í mars
Verkefnum þokar jafnt og þétt áfram þó að mörg af þeim verkefnum sem á verkefnalistanum eru séu þess eðlis að ekki er hægt að vinna þau í vetrartíð. Bygging nýs leikskóla er nokkurn veginn á áætlun þó að veður spili inn vinnu við uppsteypu. Suma daga hefur vindur hindrað að hægt sé að lyfta mótum með byggingarkrananum og ekki er steypt í mestu frostum. Þá hafa starfsmenn sviðsins boðið út grasslátt á opnum svæðum og stofnanalóðum bæjarins. Til stendur að klippa tré og gróður og einnig hafa sumarstörf verið auglýst.
Afgreiðsla: Lagt fram.
9. 2024040061 – Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 4. janúar
Lagðar fram skýrslur um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 4. janúar 2026. Ekkert umferðarslys varð á Seltjarnarnesi á tímabilinu.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
10. 2024100151 – Fundartími aprílfundar nefndarinnar
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 16. apríl 2026 sem fellur á fimmtudag. Fundartími klukkan 8:15-10:00. Er þetta í samræmi við það sem nefndin hefur áður ákveðið að stefnt skuli að. Það má geta þess að 23. apríl er sumardagurinn 1. Til glöggvunar eru hér þeir fundartímar sem stefnt er að út árið 2026:
21. maí,
18. júní
23. júlí,
20. ágúst,
17. september,
22. október,
19. nóvember,
17. desember.
Afgreiðsla: Ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði þann 21. apríl 2026, kl 8:15.
Stefnt skuli að vinnufundi um skipulagsmál miðbæjar, klukkan 8:15 þann 26. mars.
Fundi slitið kl. 9:55