Mætt:
Svana Helen Björnsdóttir, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Dagbjört Oddsdóttir, Karen María Jónsdóttir, Örn Viðar Skúlason og Garðar Svavar Gíslason.
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. 2025100181 – Sævargarðar 2 breyting á áður samþykktum aðaluppdráttum
Sótt er um breytingu á áður samþykktum uppdráttum af viðbyggingu við Sævargarða 2.
Formi þaks er breytt og í stað flats þaks verður í mænisþak með 14° halla.
Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að uppfæra þegar útgefið byggingarleyfi í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð.
2. 2023110002– Sæbraut 4, uppfærð tillaga deiliskipulagsbreytingu vegna þaksvala
Borist hefur ný tillaga frá eigendum Sæbrautar 4 sem hafa hug á að gera svalir á bílskúrsþaki. Nýja tillagan gerir ráð fyrir að færa kvist sem gerður verður á þakinu, lengra inn á þakið og fjær Sólbraut 5. Þetta hefur í för með sér að útsýni nágranna verður núna meira og skuggavarp minna en það er í dag. Þá mun innsýn inn í garð nágranna með því að færa svalirnar fjær þeim verða óveruleg.
Afgreiðsla: Nefndin telur að komið sé til móts við áður fram komnar athugasemdir með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í nýrri tillögu. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010 með auglýsingu á gildistöku deiliskipulagbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda.
3. 2026030089 – Unnarbraut 14 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingum við húsið Unnarbraut 14. Umsóknin er í samræmi við nýlega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Byggt er við bílskúr hússins og notkun hans breytt þannig að hann verður hluti af íbúðarsvæði. Einnig er 15 fermetra geymsluskúr á lóðinni endurbyggður og einangraður.
Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
4. 2025040112 – Nesvegur 103, fyrirspurn um garðskála
Húseigendur við Nesveg 103 lögðu fram fyrirspurn á febrúarfundi nefndarinnar um það hvort breyta mætti byggingarreit svo þau gætu byggt garðaskála sem myndi ná alveg að lóðarmörkum. Lóðarmörkin eru jafnframt sveitarfélagsmörk Seltjarnarness og Reykjavíkur. Sólskálinn rúmast innan hámarks nýtingarhlutfalls lóðarinnar sem er 0,4 en það var hækkað með deiliskipulagsbreytingu fyrir örfáum árum. Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar.
Afgreiðsla: Nefndin tekur jákvætt í erindið.
5. 2026040205 – Víkurströnd 1a umsókn um stækkun lóðar
Húseigandi að Víkurströnd 1a óskar eftir að stækka lóð sína inn í land bæjarins. Hann sér fyrir sér að stækkunin verði á eins konar svölum sem festar verði á núverandi lóðarvegg svo bærinn hafi áfram aðkomu að lögnum sem líklegast eru þar undir. Álit veitustjóra liggur fyrir.
Afgreiðsla: Synjað.
6. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í apríl 2026
Lagður fram uppfærður listi yfir verkefni umhverfissviðs og eignasjóðs, þar sem kemur fram forgangsröðun og staða verkefna innan sviðsins. Vorverkefni sviðsins eru í startholunum og unnið er að viðgerð á sjóvarnargarði við Norðurströnd sem skemmdist nýlega.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
7. 2024040061 – Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 18. janúar 2026
Skýrslur um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 18. janúar 2026 ræddar. Að þessu sinni hafa ekki borist nýjar skýrslur frá lögreglunni.
Afgreiðsla: Engin skýrsla barst.
8. 2024100151 – Fundartími maí fundar nefndarinnar
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 15. maí 2026 sem er föstudagur. Fundartími klukkan 8:15-10:00.
Afgreiðsla: Samþykkt að næsti fundur verði þann 15. maí 2026, kl 8:15.
Fundi slitið kl. 16:54