Mætt:
Svana Helen Björnsdóttir, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Dagbjört Oddsdóttir, Karen María Jónsdóttir, Örn Viðar Skúlason og Garðar Svavar Gíslason.
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. 2026050123 – Steinavör 4- erindi um stækkun húss
Sótt er um ýmsar breytingar á húsinu Steinavör 4 og að ljósastaur verði færður til að hægt sé að koma fyrir 3 bílastæðum við götu. Sótt er um eftirfarandi breytingar:
1.- Breytingar innanhúss:
Stækkun eldhúss, skipulagsbreyting á annarri hæð í svefnálmu, nýr skjólveggur við inngang á norðurhlið og stækkun kjallarans í vestur álmu.
Blað Nr 05 skýrir þá stækkun. Bent skal á að þótt gólfflötur stækki um 31,6 m2
og rúmmál um 82,0 m3, þá verður þess ekki vart utanfrá, þar sem geymslan er öll neðanjarðar.
Henni er ætlað að geyma útihúsgögn og garðáhöld.
Ný útihurð geymslunnar snýr til suðurs og gerir kleift, m.a. að nálgast heita pottinn.
2.- Gluggar: Allir gluggar, útihurðir og bílskúrshurðir verða endurnýjaðar.
Stofu- og Skálagluggar sem allir snúa til suðurs verða stækkaðir örlítið, en aðrir gluggar óbreyttir.
3.- Skáveggir á suðurálmu: Skáveggir á suðurálmu (svefnherbergjaálmu) munu hækka um 50 cm, þannig að stallur sem þar var hverfur. Þetta hefur ekki áhrif á grunnflöt hússins en verður þó til þess að nýtingarhlutfall hækkar.
4.- Lóð: Sótt eru að 3 bílastæði verð með aðkomu frá Steinvör 4. Til þess að svo megi verða, er óskað eftir að ljósastaur sem þar er verði færður um 2 metra til norðurs.
Torfþakið verður endurnýjað í óbreyttu formi. Á lóðamörkum Steinavarar 4 og 6 verður hlaðin 90 cm hár grjótveggur. Við vegginn næst húsunum verða gróðursett tré. Stækkun kjallara sem sótt er um er í kótahæð 3,4. Viðmið Vegagerðarinnar um lágmarks kótahæð húsa á lágsvæðum er 5,04.
Húsið er 385,6 fermetrar samkvæmt skráningu HMS en verður 438,2 fermetrar við breytinguna. Lóðin er 1494 fermetrar (skráning HMS) og nýtingarhlutfall eftir breytingu 0,31, samkvæmt hönnuði. Arkitektinn leggur áherslu á að stækkunin sé neðanjarðar og sjáist ekki að utan. Nánari skýringar á umsókninni er að finna í erindi frá arkitektinum í viðhengi.
Afgreiðsla: Synjað. Nefndin heimilar ekki viðbyggingu við kjallara sem er lægri í landi en viðmið Vegagerðarinnar.
2. 2022100084 – Vallarbraut 3 – umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr
Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýjum bílskúr við Vallarbraut 3. Einungis er sótt um leyfi fyrir öðrum bílskúrnum sem heimild er fyrir á lóðinni en þar er tveggja íbúða hús fyrir og byggingarreitur í skipulagi sem gerir ráð fyrir tveimur sambyggðum bílskúrum. Bískúrinn sem sótt er um að byggja mun tilheyra íbúð 0201 á annarri hæð. Sveitarfélaginu hefur borist ítarlegt bréf frá þeim eiganda hússins sem ekki sækir um og þar kemur fram að hann er alfarið á móti framkvæmdinni.
Það er mat umsækjandans að samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu hússins frá 2013 eigi báðar íbúðirnar í húsinu rétt á því að byggja bílskúr og vill umsækjandinn nýta þann rétt sinn.
Byggingarmagn verður 0,4 sem er innan leyfilegs hámarks nýtingarhlutfalls sem er 0,43 en samkvæmt deiliskipulaginu frá 2009 nær bílskúrinn sem nú er sótt um út fyrir byggingarreit.
Málinu var frestað á fundi nefndarinnar í nóvember síðastliðnum. Þá var eftirfarandi bókað:
Afgreiðsla: Frestað. Nefndin beinir því til sviðsstjóra að óska eftir viðbrögðum umsækjanda við ný framkomnum gögnum.
Umsækjandi hefur eftir þetta ítrekað umsókn sína um að byggja bílskúr á sínum hluta byggingarreitsins að óskar eftir að bærinn afgreiði málið.
Frestað: Nefndin óskar eftir að bílskúrinn sé innan byggingarreits í samræmi við gildandi deiliskipulag og hámarks breidd verði 3,5 m og flatarmál 25,2 fermetrar þannig að hann sé allur innan þess hluta byggingarreits sem tilheyrir íbúð á annarri hæð samkvæmt eignaskiptasamningi og gildandi deiliskipulagi.
3. 2026040205 – Víkurströnd 1 og 1a - umsókn um 150 cm háan hljóðvegg
Sótt er um leyfi fyrir byggingu hljóðveggjar fyrir framan húsin Víkurströnd 1 og 1a. Einnig er óskað eftir að byggja plötu, 50 cm út fyrir núverandi lóðarmörk og út frá núverandi plötu á bílastæði og setja umræddan skjólvegg endilangt eftir enda hennar. Nánari útlistun á framkvæmdinni og röksemdafærslu er að finna í erindi frá umsækjendum í viðhengi. Hann bendir einnig á að breyting í þessa veru var lögð fram á skipulagsnefndarfundi í október 2022 og tekið jákvætt í hana en framkvæmdin stöðvaðist þegar ljóst var að vatnsæð á vegum bæjarins lægi þarna undir en nú er lögð til leið sem gengur fyrir báða aðila samkvæmt erindi umsækjanda. Nánari útlistun á framkvæmdinni er í erindi frá umsækjendum í viðhengi.
Afgreiðsla: Nefndin heimilar ekki mannvirki fyrir ofan lagnir bæjarins og leyfir því ekki umrædda plötu. Nefndin heimilar hljóðvegg, allt að 150 sentímetra háan sem festur er beint utan á núverandi lóðarvegg.
4. 2026040205 – Víkurströnd 1a - umsókn um 180 cm háan hljóðvegg að Plútóbrekku
Sótt er um leyfi fyrir að byggja timbur hljóðvegg/skjólvegg að Plútóbrekku á lóðarmörkum Víkurstrandar 1a. Veggurinn yrði einangraður með steinull til að bæta hljóðvist og minnka umferðarhávaða frá Norðurströnd. Nánari útlistun á framkvæmdinni og röksemdafærslu er að finna í erindi frá umsækjendum í viðhengi.
Afgreiðsla: Samþykkt
5. 2026050127– Bollagarðar 107 – umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu
Húseigendur við Bollagarða 107 leggja fram óverulega deiliskipulagsbreytingu sem heimilar viðbyggingu við húsið sem myndi stækka um allt að 14%. Nýtingarhlutfall er í dag 0,37 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en yrði 0,43 við breytinguna.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir erindið og beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Bollagarðar 101, 103, 105, 109, 111 og 115.
6. 2026050124 Erindi um matarvagn við Snoppu
Lagt fram erindi um matarvagn án staðsetningar en bent er á að Snoppa væri æskileg staðsetning. Um er að ræða sölu á pylsum, lambasúpu, kakó. kaffi og gosi.
Viðkomandi er með "Food Wagon" í dag. Umsækjandi bendir á samlegðaráhrif þess að hafa starfsmenn við Snoppu sem myndu hafa eftirlit með svæðinu og myndu sjá um að öll umgengi verði til fyrirmyndar. Umsækjandi sér fyrir sér að hafa opið allt árið um kring og haft opið um kvöldin þegar norðurljós eru, en opnunartími væri ákveðinn með sveitarfélaginu.
Afgreiðsla: Nefndin vísar erindinu til umhverfisnefndar.
7. 2026050125 Athugasemdir við breytta aðkomu að leikskóla frá íbúum
Lagðar fram tvær athugasemdir sem íbúar gera við breytta aðkomu að leikskólum Seltjarnarness en hugmyndir eru um að hafa aðkomu tímabundið frá Selbraut meðan verið er að grafa fyrir síðasta hluta sökkla nýbyggingarinnar.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt. Samþykkt að fela sviðsstjóra að tryggja nauðsynlegar úrbætur.
Bókun fulltrúa Samfylkingar og óháðra:
Það er miður að tillögur að tímabundinni breytingu hafi ekki komið til umfjöllunar nefndarinnar í tæka tíð, heldur sé bærinn gerður afturreka með framkvæmdina, sérstaklega í ljósi þess að þörfin hefur legið fyrir. Breytingin hefur ekki fengið formlega umfjöllun í skipulags- og umferðarnefnd, ekki hefur verið framkvæmt nauðsynlegt mat í samvinnu við lögreglu, né hefur verið haft samráð við íbúa. Þá er ekki hægt að líta svo á að erindið sem nú er til umfjöllunar standist skoðun þar sem engin gögn eru lögð fyrir nefndina sem svara því hvernig útfærslan á hjáleið verður og hvernig umferð verður beint inn og út úr hverfinu og hvaða aðgerðir verði farið í til að tryggja umferðaröryggi og lágmarka slysahættu. Þá hefur ekki verið farið í samráð við íbúa eins og skipulagslög gera kröfu til, þar sem skoðaðar eru leiðir til að tryggja sérstaklega gangandi og hjólandi umferð barna í hverfinu sem ekki eru vön þeirri umferð sem nú á að beina inn í hverfið.
Mikilvægt að unnið sé samkvæmt bestu mögulegu venjum stjórnsýslunnar í þessu máli sem öðrum. Bent er á Lögreglusamþykkt Seltjarnarnesbæjar þar sem stendur að setja skuli upp skilti og merkingar til leiðbeiningar fyrir ökumenn vegna framkvæmda sem truflað geta umferð.
Sé fyrirsjáanlegt að framkvæmdir muni taka lengri tíma en 7 daga skal setja upp ítarlegri skilti þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdina, á hvers vegum hún er og hvað hún muni standa lengi. Einnig er bent á að ekki liggi fyrir hvort kostnaður við nýja hjáleið, viðeigandi merkingar og umferðarhindranir séu á kostnað verktaka eða á kostnað bæjarins og þá hver hann sé.
Karen María Jónsdóttir og Garðar Svavar Gíslason
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks:
Meirihluti skipulagsnefndar bendir á að um virkt framkvæmdasvæði sé að ræða þar sem oft þarf að bregðast hratt og faglega við aðstæðum sem koma upp samhliða framkvæmdum. Slík verkefni krefjast skilvirkni og sveigjanleika í ákvörðunartöku til að tryggja framgang framkvæmda, öryggi og hagsmuni sveitarfélagsins.
Meirihlutinn telur því eðlilegt að mál af þessum toga séu afgreidd innan stjórnsýslunnar í samræmi við gildandi verkferla og heimildir. Það kemur ekki á óvart að fulltrúar Samfylkingarinnar kjósi að setja fram gagnrýni á slíka málsmeðferð, enda virðist þar enn á ný lögð meiri áhersla á pólitískt ferli en hagkvæma og skilvirka framkvæmd.
Á sama tíma leggur meirihlutinn ríka áherslu á að upplýsingagjöf til íbúa verði bætt. Óskað hefur verið eftir því að íbúar verði upplýstir með skýrari hætti um ástæður þess að gripið sé til þessa úrræðis, hversu lengi ráðstafanirnar muni standa yfir og hvernig framkvæmdum verði háttað. Þá er jafnframt lögð áhersla á að gripið verði til allra mögulegra varúðarráðstafana á framkvæmdatíma til að tryggja öryggi vegfarenda og lágmarka óþægindi fyrir íbúa.
Svana Helen Björnsdóttir, Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir og Örn Viðar Skúlason
8. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í maí 2026
Lagður fram uppfærður listi yfir verkefni umhverfissviðs og eignasjóðs, þar sem kemur fram forgangsröðun og staða verkefna innan sviðsins. Starfsmenn sviðsins hafa verið að sinna hefðbundnum vorverkefnum.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
9. 2024040061 – Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu frá 18. janúar 2026
Skýrslur um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu ræddar. Að þessu sinni hafa ekki borist nýjar skýrslur frá lögreglunni síðan 18. janúar 2026.
Afgreiðsla: Rætt.
10. 2024100151 – Fundartími nefndarinnar í júní
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 18. júní ef ný nefnd hefur verið skipuð þá í kjölfar kosninga. Fundartími klukkan 8:15-10:00. Er það í samræmi við fyrri áform.
Afgreiðsla: Áætlað er að næsti fundur verði þann 18. júní 2026, kl 8:15.
Fundi slitið kl. 9:29