Fara í efni

Skipulags- og umferðarnefnd

177. fundur 25. júní 2026 kl. 08:15 - 09:58 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi

Mætt:

Björn Jóhannesson, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Dagbjört Oddsdóttir, Grétar Dór Sigurðsson, Helgi Steinar Helgason og Hannes Tryggvi Hafstein. 

Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.

Í upphafi fundar lagði formaður til að eitt mál yrði tekið á dagskrá með afbrigðum. Það eru mál nr. 8 á dagskrá sem fjallar um byggingarleyfi fyrir bílskúr við Tjarnarstíg 3. Var samþykkt samhljóða að málið yrði tekið fyrir á fundinum.

Dagskrá:

1. 2026060127 – Neströð 7 – erindi um breyting á deiliskipulagi vegna stækkunar húss til vesturs

Sótt er um að breyta deiliskipulagi Vestursvæða vegna lóðarinnar Neströð 7, svo unnt verði að stækka húsið Neströð 7 um 11,9 fermetra miðað við það hús sem nú stendur á lóðinni í dag, þannig að húsið verði 265 fermetrar. Við þetta kemur útbygging út frá vesturhlið sem nær þóeinungis 60 sentímetra til vesturs og samkvæmt arkitektnum stendur hún á landi sem var raskað þegar grafið var fyrir viðbyggingu sem reist var árið 2003.

Við þessa breytingu verður nýtingarhlutfall lóðarinnar 0,17 en lóðin er 1595 fermetrar og hámarks nýtingarhlutfall lóðarinnar samkvæmt gildandi deiliskipulagi er 0,33.

Húsið er 221,8 fermetrar samkvæmt skráningu hjá Þjóðskrá Íslands en húsið sem stendur á lóðinni núna er 253,1 m2 þar sem það hefur verið stækkað án aðkomu byggingaryfirvalda gegnum árin.

Óskað er eftir að stækka það um 11,9 fermetra núna svo húsið á lóðinni verði 265 fermetrar.

Í viðhengi eru nokkuð ítarleg gögn frá umsækjanda ásamt bréfi frá arkitekt.

Afgreiðsla: Nefndin er jákvæð gagnvart því að grenndarkynna breytingu á byggingarreit í deiliskipulagi. Hún óskar eftir jákvæðri umsögn Minjastofnunnar fyrir breytingunni og hefðbundnum breytingaruppdrætti sem sýnir útsnið úr gildandi deiliskipulagi og þær breytingar sem gerðar eru á því. Á uppdrættinum þarf að sýna lóðina ásamt byggingarreitnum fyrir og eftir þá breytingu sem sótt er um. Þessi gögn þarf að leggja fyrir nefndina svo hún geti tekið endanlega ákvörðun um að grenndarkynna breytinguna.

Eftir að grenndarkynningu er lokið þarf eftir sem áður að sækja um byggingarleyfi fyrir öllum þeim breytingum sem gerðar hafa verið á húsinu síðan það var síðast samþykkt af byggingaryfirvöldum þegar það var 221,8 fermetrar og skila inn nýjustu útgáfu af skráningartöflu fyrir húsið i endanlegri mynd.

2. 2026060049 – Bygginngarleyfi Austurströnd 12 - sælkeraverslun

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innréttingu á 1. hæð sem fela í sér að komið er fyrir aðstöðu fyrir nýja sælkeraverslun og færa skrifstofu í annað rými en það er nú. Einnig er sótt um að gera nýja kaffistofu og nýja starfsmannaaðstöðu, þar sem komið er fyrir starfsmannaskápum og nýju salerni fyrir starfsmenn. Þessar breytingar hafa engin áhrif á útlit né stærð húsnæðisins. Bætt er við brunahólfunum í kjallara og á 1. hæð samanber kafla um brunavarnir á uppdráttum.

Afgreiðsla: Samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn SHS. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

3. 2026060128 – Umsókn um tilfærslu á ljósastaur við Bollagarða 97

Lóðareigandi óskar eftir að ljósastaur sem stendur við innkeyrslu að lóð hans verið fæður norður fyrir rafmagnskassa sem stendur við lóðarmörk nágrannalóðar. Hann óskar eftir að bærinn framkvæmi færsluna honum að kostnaðarlausu. Hann hefur breikkað innkeyrslu sína þannig að umræddur staur stendur nú fyrir henni og hefur valdið tjóni á ökutækjum hans.

Sviðstjóri hefur boðið honum að láta færa staurinn á hans kostnað eins og mörg dæmi eru fyrir, en lóðareigandinn telur að starfsmenn bæjarins hafi áður lofað að færa staurinn honum að kostnaðarlausu og hann fer fram á að staðið verði við þau loforð.

Afgreiðsla: Nefndin hafnar því að bærinn greiði kostnað við að færa staurinn en heimilar að það verði gert á kostnað lóðareiganda þegar skriflegt leyfi eiganda nágrannalóðar liggur fyrir.

4. 2026060094 – Valhúsabraut 19 – beiðni sýslumanns um umsögn um gistileyfi

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir umsögn vegna umsóknar um gistileyfi fyrir gistiheimili í flokki II-C að Valhúsabraut 19, fyrir 8 gesti. Húsið er skráð sem einbýlishús í fasteignaskrá. Þar hefur um árabil verið í gildi leyfi til að reka gistingu í flokki II-C undir nafninu Blue House. Leyfið rann út fyrir skömmu og hafa eigendur unnið í að fá það endurnýjað. Sama gildir um gistingu í öðru húsi í nágreninu, Valhúsabraut 35 en nefndin samþykkti að heimila endurnýjun á gistileyfi fyrir þá eign í ágúst á síðasta ári þó það leyfi hefði líka runnið út.

Heimilt er að gefa út leyfi fyrir gistingu á íbúðarsvæðum í Seltjarnarnesbæ, ef um er að ræða leyfi til áframhaldandi starfsemi og sama leyfishafa, í sama húsnæði og án aukins umfangs starfseminnar. Nýlega var gerð breyting á grein 3.1 aðalskipulagi Seltjarnesbæjar sem heimilar þetta. Hún var samþykkt í bæjarstjórn þann 14. júní 2023.

Í 3.1 grein aðalskipulags segir eftir breytinguna:

Gistiþjónusta, önnur en heimagisting, er óheimil á íbúðarsvæðum. Þó skal gert ráð fyrir að áður útgefin leyfi verði endurnýjuð ef þess er óskað en því aðeins að þau séu gefin út á sama leyfishafa og fyrir sama húsnæði og án aukins umfangs starfseminnar.

Afgreiðsla: Nefndin er jákvæð gagnvart erindinu sem hún telur að sé í samræmi við nýlega breytingu á aðalskipulagi sem fjallaði um gistiþjónustu í bænum. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að gefa jákvæða umsögn í samræmi við tillögu í fylgiskjali.

5. 2026050125 – Athugsemdir og ábendingar vegna nýs hliðs á leikskólasvæði Sólbrekku og Mánabrekku.

Eftir að síðasti fundur var boðaður bárust tvær athugasemdir við bráðabirgðaaðkomu að leikskólasvæðinu sem ekki náðu inn á fundinn. Eftir fundinn var sent var nýtt upplýsingabréf í öll hús við Skerjabraut, Selbraut, Sæbraut og Sólbraut.

Nokkrar spurningar eru settar fram í athugasemdunum og einnig nokkrar úrbótatillögur til að bæta umferðaröryggi í hverfinu.

Helstu úrbótatillögur eru þessar:

Að koma upp gangbrautum í hverfinu.

Að bæta við hraðahindrunum í hverfinu ma annars á Skerjabraut við gatnamótin hjá Selbraut og Sólbraut og fleiri hraðahindrunum á Selbraut.

Að komið á verði á biðskildu á Sólbraut og Selbraut að Skerjabraut.

Í annarri athugasemdinni er komið á framfæri hrósi fyrir upplýsingagjöf kringum þessar breytingar og þar segir: „Þið eigið hrós skilið bæði fyrir að hlusta á íbúa, sem og að bregðast við og að upplýsa með bréfi sem var skilað inn um lúguna.“

Afgreiðsla: Lagt fram. Skipulagsfulltrúa falið að svara í samræmi við tillögu sem liggur fyrir.

6. 2026060129 – Erindi frá íbúa um öryggi á göngu og hjólastígum

Íbúi sendir erindi til bæjaryfirvalda þar sem hann setur fram áhyggjur af hraða hjólandi umferðar á göngu og hjólastígum í bænum af gefnu tilefni. Hann kemur með nokkrar tillögur a úrbótum, sem eru þessar:

Uppsetningu hraðahindrana eða annarra hraðastillandi lausna á göngu- og hjólastígum.
Uppsetningu hraðahindrana eða annarra hraðastillandi lausna á göngu- og hjólastígum í námunda við gangbrautarljós.
Skýrari merkingar um forgang gangandi vegfarenda og skyldur hjólreiðamanna til að draga úr hraða.

Afgreiðsla: Nefndin þakkar erindið og góðar tillögur. Erindinu er beint til endurskoðunar umferðaröryggisáætlunar Seltjarnarnesbæjar.

7. 2026060017 Húsnæðisáætlun 2026

Húsnæðisáætlun Seltjarnarnesbæjar vegna 2026 lögð fram.

Afgreiðsla: Húsnæðisáætlun Seltjarnarness 2026 lögð fram og samþykkt og nefndin beinir málinu til bæjarstjórnar.

8. 2025110219 Tjarnarstígur 3 - byggingarleyfi bílskúr

Lögð fram umsókn um byggingu bílskúrs á lóðainn Tjarnarstígur 3. Nýlega lauk grenndarkynningu á breytingu á deiliskipulagi sem var nauðsynleg til að gera byggingu bílskúrs mögulega. Nýtingarhlutfall var aukið úr 0,5 í 0,54 en byggingarreitur er sá sami og í upprunalegu deiliskipulagi Lambastaðahverfis frá 2012. Engin athugasemd barst en ein ábending kom frá veitum um rafstreng sem liggur í götu við lóðarmörk. Bílskúrinn er 75,1 fermetrar og skiptist í tvo hluta þar sem er einn fyrir hvora íbúð í húsinu. Húsið sem fyrir er á lóðinni er 221,5 fermetrar og heildar byggingarmagn á lóðinni verður 291,6 fermetrar.

Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

9. 2024100151 – Fundartími júlí fundar nefndarinnar

Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 23. júlí. Fundartími klukkan 8:15-10:00. Er það í samræmi við fyrri áform sem voru samþykkt á desemberfundi nefndarinnar.

Afgreiðsla: Ákveðið er að næsti fundur verði þann 23. júlí 2026, kl 8:15.

 

Fundi slitið kl. 9:58

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?