Fara í efni

Skipulags- og umferðarnefnd

178. fundur 23. júlí 2026 kl. 08:15 - 09:58 fundarsal bæjarstjórnar, Austurströnd 2.

178. fundur skipulags- og umferðarnefndar

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunni, fimmtudaginn 23. júlí 2026 kl. 8.15

Mætt: Björn Jóhannesson, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Helgi Steinar Helgason, Anna Björg Erlingsdóttir og Hannes Tryggvi Hafstein.

Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.

Dagskrá:

1. 2026070093 – Sæbraut 4 byggingarleyfi kvistur og þaksvalir

Sótt er um að byggja kvist við húsið Sæbraut 4 og gera þaksvalir yfir bílskúr. Viðbyggingin er í samræmi við breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar sem var staðfest í apríl af bæjarstjórn á 1026. fundi, eftir að nefndin hafði samþykkt breytinguna á apríl fundi sínum. Í apríl bókaði nefndin: „Afgreiðsla: Nefndin telur að komið sé til móts við áður fram komnar athugasemdir með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í nýrri tillögu. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010 með auglýsingu á gildistöku deiliskipulagbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda.“ Bæjarstjórn bókaði á 1026 fundi: „Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 2. lið fundargerðarinnar samhljóða.“

Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Helgi Steinar Helgason vék af fundi við afgreiðslu næsta dagskrárliðs.

2. 2026070103 - Steinavör 12 breytt deiliskipulag og breytt lóðarmörk

Sótt er um leyfi til að breyta deiliskipulagi lóðarinnar Steinavör 12 þannig að þar verði 2 lóðir og byggja megi parhús með tveim íbúðum á hvorri lóð jafnframt er sótt um að breyta lóðarmörkum þannig að 97 fermetrar af bæjarlandi renni inn í nýju lóðirnar.

Afgreiðsla: Frestað. Nefndin er jákvæð gagnvart erindinu en óskar eftir að sjá fyrirkomulag lóðarinnar samhengi við aðrar óbyggðar lóðir í nágreninu.

Helgi Steinar Helgason tók aftur sæti á fundinum.

3. 2026060127 - Neströð 7 – óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna stækkunar húss til vesturs

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vestursvæða vegna Nestraðar 7, svo unnt verði að stækka húsið um 11,9 fermetra miðað við það hús sem nú stendur á lóðinni í dag, þannig að húsið verði 265 fermetrar. Við þetta kemur útbygging út frá vesturhlið sem nær 60 sentímetra til vesturs og samkvæmt arkitektinum stendur hún á landi sem var raskað þegar grafið var fyrir viðbyggingu sem reist var árið 2003.

Umsögn Minjastofnunnar liggur fyrir en stofnun óskar eftir að fornleifafræðingur verði fenginn til að hafa eftirlit með framkvæmdinni.

Við þessa breytingu verður nýtingarhlutfall lóðarinnar 0,17 en lóðin er 1595 fermetrar og hámarks nýtingarhlutfall lóðarinnar samkvæmt gildandi deiliskipulagi er 0,33.

Húsið er 221,8 fermetrar samkvæmt skráningu hjá Þjóðskrá Íslands en húsið sem stendur á lóðinni núna er 253,1 m2 þar sem það hefur verið stækkað án aðkomu byggingaryfirvalda gegnum árin.

Óskað er eftir að stækka það um 11,9 fermetra núna svo húsið á lóðinni verði 265 fermetrar.

Afgreiðsla: Samþykkt. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna breytingu á deiliskipulaginu, í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Nesbali 32 og 34 og ennfremur Neströð 5.

4. 202506117 - Umsókn ON um fjölgun hleðslustöðva við sundlaug Seltjarnarness

Orka náttúrunnar setti upp hleðslustæði við sundlaugina í fyrra. Móttökurnar hafa verið framar vonum. Í fyrra voru settir upp tveir staurar með hleðslustöðvum og fyrirtækið óskar nú eftir heimild til að fjölga um tvo staura með stöðvum.

Afgreiðsla: Samþykkt.

5. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í júlí 2026

Lagður fram uppfærður listi yfir verkefni umhverfissviðs og eignasjóðs, þar sem kemur fram staða og forgangsröðun og staða verkefna innan sviðsins. Sumarverkefni sviðsins eru vel á veg komin og starfsmenn vinna nú að ýmsu verkefnum og viðgerðum tengdum sumarlokunum í skólum og leikskólum bæjarins.

Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.

6. 2026030080 – Miðsvæði - uppbygging á óbyggðum reitum í eigu bæjarins

Skipulagsfulltrúi leggur fram hugmyndir sem komið hafa fram um uppbyggingu á tveim lóðum í eigu bæjarfélagsins, önnur er meðfram Nesvegi við Eiðistorg og hinn við Austurströnd þar sem Orkan hefur rekið bensístöð um nokkurt skeið.

Afgreiðsla: Frestað.

7. 2026070103 – Möguleiki á fjölgun byggingalóða í bænum

Lagt fram kort þar sem sýnir mögulega fjölgun byggingarlóða í bænum. Um er að ræða ýmsa staði þar sem koma mætti fyrir nýjum lóðum. Einnig eru ennþá nokkrar óbyggðar lóðir í einkaeign hér og þar í bænum.

Afgreiðsla: Frestað.

8. 2024100151 – Opin svæði á vesturnesi

Borið hefur á útþenslu lóða við Nesbala til suðurs og vesturs.

Afgreiðsla: Lagt fram og rætt. Frestað.

9. 2024100151 – Fundartími ágústfundar nefndarinnar

Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 20. ágúst. Fundartími klukkan 8:15-10:00. Er það í samræmi við fyrri áform sem voru samþykkt á desemberfundi nefndarinnar.

Afgreiðsla: Ákveðið er að næsti fundur verði þann 20. ágúst 2026, kl 8:15.

 

Fundi slitið kl. 9:58

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?