179. fundur skipulags- og umferðarnefndar
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunni, fimmtudaginn 20. ágúst 2026 kl. 8.15
Mætt: Björn Jóhannesson, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Helgi Steinar Helgason, Magnús Benediktsson, Grétar Dór Sigurðsson og Hannes Tryggvi Hafstein.
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. 2026080072 – Tjarnarstígur 5 - byggingarleyfi bílskúr
Lögð fram umsókn um byggingu bílskúrs á lóðinni Tjarnarstígur 5 sem er tveggja íbúða hús. Nýlega lauk grenndarkynningu á breytingu á deiliskipulagi sem var nauðsynleg til að gera byggingu bílskúrs mögulega. Nýtingarhlutfall var aukið úr 0,5 í 0,54 en byggingarreitur er sá sami og í upprunalegu deiliskipulagi Lambastaðahverfis frá 2012.
Húsið er sambyggt við Tjarnarstíg 3 sem einnig inniheldur tvær íbúðir. Nýlega var samþykktur tvöfaldur bílskúr á lóð þess húss.
Sótt er um er einn 38,1 fermetrar bílskúr í hluta byggingarreitsins. Heimilt er að byggja tvo bílskúra í reitnum. Samþykki nágranna sem á líka byggingarheimild í hinum hluta reitsins liggur fyrir.
Húsið sem fyrir er á lóðinni er 195,7 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Lóðin er 555 fermetrar og heildar byggingarmagn á lóðinni verður 233,8 fermetrar við breytinguna, sem gefur nýtingarhlutfallið 0,42.
Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
2. 2026050127– Bollagarðar 107 – óveruleg deiliskipulagsbreyting eftir grenndarkynningu
Húseigendur við Bollagarða 107 lögðu fram óverulega deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt til grenndarkynningar á fundi nefndarinnar í maí. Breytingin heimilar viðbyggingu við húsið sem myndi stækka um allt að 14%. Nýtingarhlutfall er í dag 0,37 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en yrði 0,43 við breytinguna. Tillagan var grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Bollagarðar 101, 103, 105, 109, 111 og 115.
Nágranni gerði athugasemd við breytinguna og bendir meðal annars á að hún skerði útsýna sitt til sjávar.
Afgreiðsla: Frestað. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kynna andmælin fyrir húseigendum og ráðgjafa þeirra og óska eftir viðbrögðum þeirra.
3. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í ágúst 2026
Lagður fram uppfærður listi yfir verkefni umhverfissviðs og eignasjóðs, þar sem kemur fram staða og forgangsröðun og staða verkefna innan sviðsins. Flestum hefðbundnum sumarverkefnum er nú lokið.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
4. 2026030080 – Uppbygging á miðsvæði í bænum
Uppbyggingu á miðsvæði rætt. Þar á meðal tveim lóðum í eigu bæjarfélagsins, önnur er meðfram Nesvegi við Eiðistorg og hinn við Austurströnd þar sem Orkan hefur rekið bensínstö
Afgreiðsla: Málið rætt.
5. 2026070102 – Möguleiki á fjölgun byggingalóða í bænum
Á síðasta fundi var lagt fram kort þar sem sýnir mögulega fjölgun byggingarlóða í bænum. Um er að ræða ýmsa staði þar sem hugsanlegt er að koma fyrir nýjum lóðum. Einnig eru ennþá nokkrar óbyggðar lóðir í einkaeign hér og þar í bænum.
Afgreiðsla: Málið rætt.
6. 2024100151 – Fundartími septemberfundar nefndarinnar
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 24. september. Fundartími klukkan 8:15-10:00.
Afgreiðsla: Ákveðið er að næsti fundur verði þann 24. september 2026, kl 8:15.