180. fundur skipulags- og umferðarnefndar
Haldinn í aðstöðu skipulags- og umhverfissviðs, Austurströnd 4, fimmtudaginn 24. september 2026 kl. 8.15
Mætt: Björn Jóhannesson, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, Grétar Dór Sigurðsson og Egill Ö. Hermannsson sem sat fundinn í stað Helga Steinars Helgasonar.
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Í upphafi fundar lagði formaður til að tvö mál yrðu tekin á dagskrá með afbrigðum. Það eru mál nr. 4 og 5 sem fjallar um mögulega breytingu á atvinnuhúsnæði á 1. og 2. hæð Austurstrandar 2-14 í íbúðarhúsnæði og saunavagn við björgunarsveitarhúsið.
Var samþykkt samhljóða að málin yrðu tekin fyrir á fundinum.
Dagskrá:
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir vék af fundi við afgreiðslu máls nr 1.
1. 2026090241 – Fornaströnd 7, óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna glerskála
Sótt er um að breyta deiliskipulagi svo unnt verði að byggja glerskála á lóðinni Fornaströnd 7. Byggingarreitur er stækkaður til suðurs og nýtingarhlutfall aukið úr 0,3 í 0,36. Við þessa aukningu á nýtingarhlutfalli rúmast nýr glerskáli og allt núverandi hús ásamt B-rýmum þess innan heimildarinnar sem hækkað nýtingarhlutfall gerir mögulegt að byggja á lóðinni.
Afgreiðsla: Samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna breytingu á deiliskipulaginu, í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Fornaströnd 5, 8, 9 og 10 og jafnframt Víkurströnd 6, 8 og 10.
Skipulagsfulltrúa falið að kynna málið sérstaklega fyrir réttarhöfum lóðanna Víkurstrandar 6 og 8 og Fornustrandar 5.
2. 2026070103 – Steinavör 12 breytt deiliskipulag og breytt lóðarmörk
Sótt er um leyfi til að breyta deiliskipulagi lóðarinnar Steinavör 12 þannig að þar verði 2 lóðir og byggja megi tveggja hæða parhús með tveim íbúðum á hvorri lóð. Fjallað var um málið á fundi nefndarinnar í júlí. Þá var málinu frestað. Nefndin var jákvæð gagnvart erindinu en óskaði eftir að sjá fyrirkomulag lóðarinnar samhengi við aðrar óbyggðar lóðir í nágreninu. Síðan þá hefur skipulagshöfundur breytt tillögunni þannig að aðkoma að nágrannalóðinni Steinavör nr. 10 er eingöngu frá Steinavör líkt og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir, húsið er sýnt í samhengi við aðrar lóðir og hámarks hæð sem var 7 metrar er nú 6,5 metrar.
Nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0,4 en sótt er um að það verði 0,55.
Afgreiðsla: Samþykkt að vísa hugsanlegri sölu á landi til samþykktar bæjarráðs. Með fyrirvara um sölu á umræddu landi, beinir nefndin því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna breytingu á deiliskipulaginu, í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Steinavör 2, 4, 6, 8, og 10.
3. 2026050127 – Bollagarðar 107 óveruleg deiliskipulagsbreyting eftir grendarkynningu
Breytingu á deiliskipulagi Bollagarða og Hofgarða var nýlega grenndarkynnt. Athugasemd barst frá nágranna sem telur meðal annars að tillagan skerði útsýni sitt.
Málinu var frestað á síðasta fundi en þá bókaði nefndin eftirfarandi: Frestað. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kynna andmælin fyrir húseigendum og ráðgjafa þeirra og óska eftir viðbrögðum þeirra.
Sjónarmið húseiganda liggja nú fyrir en þeir eru ekki sammála mótmælunum og benda á að viðkomandi hafi nú þegar afar takmarkað útsýni til sjávar.
Afgreiðsla: Nefndin telur rétt að taka tillit til mótmælanna beinir því til bæjarstjórnar að breytingin sem var grenndarkynnt verði ekki samþykkt.
4. 2026090284 – Austurströnd 2-14. Möguleg breyting á atvinnuhúsnæði á 1. og 2. hæð í íbúðarhúsnæði
Vaknað hefur spurning hvort mögulegt verði í framtíðinni að breyta atvinnuhúsnæði á 1. og mögulega 2. hæð við Austurströnd 2-14 í íbúðarhúsnæði.
Þessi hús eru á svokölluðu miðsvæði í aðalskipulagi Seltjarnarness, nánar tiltekið á svæði M2.
Um það stendur: „Byggingar mega vera 2-4 hæðir og þá hæstar við Suðurströnd skv. nánari útfærslu í deiliskipulagi. Reitur á horni Norðurstrandar og Suðurstrandar sem er um 0,4 ha telst þróunarreitur þar sem ekki má útiloka möguleika á endastöð Borgarlínu. Nýtingarhlutfall á hornreitnum er allt að 0,6.“
Ekkert í aðalskipulagi gerir kröfu um að það sé atvinnustarfsemi á neðri hæðum við Austurströnd.
Svæðið hefur ekki verið deiliskipulagt.
Því er hægt heimila breytta notkun á húsnæði á 1. og 2. hæð við Austurströnd 2-14. Gæta þarf að því að nýjar íbúðir uppfylli byggingarreglugerð, með tilliti til flóttaleiða og fleiri atriða.
Afgreiðsla: Málið rætt. Nefndin er jákvæð gangvart þeim að möguleiki verði að breyta atvinnuhúsnæði á 1. og 2. hæð við Austurströnd í íbúðarhúsnæði að vandlega athuguðu máli.
5. 2026030079 – Sánavagn við björgunarsveitarhús
Á fundi nefndarinnar í mars 2025 var fjallað um sánavagn við björgunarsveitarhúsið. Þá var bókað: Afgreiðsla: Frestað. Nefndin er jákvæð gagnvart erindinu en leggur áherslu á að umsögn
Björgunarsveitarinnar Ársæls og hafnarstjórans þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin.
Ekki hefur borist umsögn frá Björgunarsveitinni.
Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að leita umsagnar björgunarsveitar og hafnarstjóra. Byggingarfulltrúa falið að gefa út stöðuleyfi til 12 mánaða að fengnum umræddum umsögnum.
Egill Hermannsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
6. 2025040202 – Erindi frá íbúa vegna hraðaksturs á Norðurströnd
Borist hefur erindi frá íbúa sem hefur fengið sig fullsaddan af hraðaakstri við Norðurströnd.
Viðkomandi hefur áður beðið um aðgerðir á veginum til að sporna við hraðakstri og bendir á að nýlegar aðgerðir geri lítið gagn og óskar eftir alminnilegum aðgerðum sem hægi á umferð í báðar áttir.
Afgreiðsla: Nefndin beinir erindinu til endurskoðunar umferðaröryggisáætlunar sem er í vinnslu um þessar mundir. Nefndin óskar eftir upplýsingum um hraðamælingar fyrir næsta fund.
Fulltrúi S-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi S-lista þakkar íbúanum að hafa samband og fyrir að vekja enn á ný athygli á þessu mikilvæga máli. Ég tek undir áhyggjur íbúans. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að íbúar, og sérstaklega börn og ungmenni sem ganga eða hjóla um svæðið, þurfi að upplifa Norðurströndina sem óöruggan stað vegna hraðaksturs.
Það er líka eðlilegt að spurt sé hvort þær aðgerðir sem þegar hafa verið ráðist í séu að skila þeim árangri sem til var ætlast. Ef hraðakstur er áfram viðvarandi, sérstaklega á kvöldin, þá þarf að skoða málið upp á nýtt og grípa til markvissari aðgerða.
Ég tel mikilvægt að við horfum ekki eingöngu á eina lausn heldur skoðum heildstætt hvernig hægt er að draga úr hraða og auka öryggi á þessum kafla. Þar mætti meðal annars skoða:
· Langtímamælingu umferðarhraða og hávaða á götunni til að meta umfang vandans.
· Þrengingu götunnar við gangbrautir og gatnamót.
· Útfærslu gatnamóta með þrengingum og sveigjum líkt og hefur verið gert t.d. við Ægissíðu. Þessar lausnir hægja á báðum akstursáttum.
· Samstarf við lögreglu um mælingar og aðgerðir.
· Bætt lýsing og sýnileiki fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, sérstaklega á þeim stöðum þar sem þeir þvera eða fara nærri akbrautinni.
· Skýrari merkingar og mögulega breytingu á yfirborði vegar, sem getur hjálpað til við að gera ökumönnum ljóst að þeir séu komnir inn á
· svæði þar sem sérstaklega þarf að sýna aðgát.
· Að fylgja málinu eftir með mælingum eftir að aðgerðir hafa verið framkvæmdar.
· Viðhalda umferðarfræðslu til yngstu hópanna í samstarfi við lögreglu.
Ég minnist þess á oddvitakappræðum í maí fyrr á árinu þegar frambjóðendur svöruðu góðri spurningu um umferðaröryggi og bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins sagðist, með minni umorðun, heyra raddir með og á móti auknu umferðaröryggi í bænum. Hann viðurkenndi í kjölfarið að hann hafi sjálfur verið gómaður af lögreglunni fyrir of hraðan akstur í eigin sveitarfélagi.
S-listinn mun ávallt hugsa um hag barna umfram hag þeirra sem stunda ofsaakstur við Norðurströnd.
Egill Ö. Hermannsson, varamaður S-lista í Skipulags- og umferðarnefnd.
7. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í september 2026
Lagður fram uppfærður listi yfir verkefni umhverfissviðs og eignasjóðs, þar sem kemur fram forgangsröðun og staða verkefna innan sviðsins. Flestum sumarverkefnum sviðsins er lokið og það gildir einnig um mest allt fjármagn sem var áætlað til verkefna í ár.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
8. 2024100151 – Fundartími októberfundar nefndarinnar
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 15. október. Fundartími klukkan 8:15-10:00. Er það í samræmi við fyrri áform sem voru samþykkt á desemberfundi nefndarinnar.
Afgreiðsla: Ákveðið er að næsti fundur verði þann 15. október 2026, kl 8:15.
Fundi slitið kl. 9:45