181. fundur skipulags- og umferðarnefndar
Haldinn í aðstöðu skipulags- og umhverfissviðs, Austurströnd 4, fimmtudaginn 15. október 2026 kl. 8.15
Mætt: Björn Jóhannesson, formaður nefndarinnar sem stýrði fundi, Helgi Steinar Helgason, Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir og Grétar Dór Sigurðsson
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. 2026100091 – Umferðarmál á vestursvæðum - kynning
Thijs Kreukels umferðarverkfræðingur mætir á fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnir tillögu sem hann hefur unnið fyrir sveitarfélagið um umferðarfyrirkomulag á vestursvæðum Seltjarnarness. Þar mun fljótlega opna náttúrfræðisafn í nýja safnahúsinu sem mun að óbreyttu leiða af sér umferð langferðabíla um Sefgarða og skapa aukna þörf fyrir bifreiðastæði miðað við það sem nú er í boði. Thijs hefur skoðað mögulegar lausnir til að bæta þar um og kynnir tillögu sína.
Afgreiðsla: Málið rætt.
2. 2019110091 – Lambastaðabraut 14 – reyndarteikningar
Lagðar fram reyndarteikningar af Lambastaðabraut 14, dags. 30.09.2026. Á uppdráttum kemur eftirfarandi fram:
„Sótt er um lítilsháttar breytingar á áður samþykktum uppdráttum af húsinu að Lambastaðabraut 14, landnúmer 117267. Staðfang 1024527. Byggingarleyfi frá 15. júní 2020. Breytingar frá áður samþykktum teikningum:
-Gluggar á suðvesturhlið hússins minnka og í stað þriggja verður einn gluggi og ein rennihurð.
-Gluggi á suðausturhlið hússins snýst og verður lóðréttur í stað þess að vera láréttur.
-Tröppur settar í stað ramps við aðalinngang húss.
-Heitur pottur færður innar á lóð.
-Arni í stofu efri hæðar snúið að útvegg.
Aðrar breytingar eru ekki gerðar. Flatarmál og rúmmál húss er óbreytt. Skráningartafla breytist ekki.“
Afgreiðsla: Nefndin gerir ekki athugasemdir við að byggingarfulltrúi samþykki reyndarteikningar.
Að gefnu tilefni vill nefndin benda á að bygging hússins hefur tekið langan tíma með tilheyrandi raski og óþægindum fyrir nágranna. Lóðarhafar hafa svarað byggingarfulltrúa um að þeir hyggist ljúka framkvæmdum sem fyrst og framkvæmdum við helstu verkþætti verði lokið á árinu 2026. Þrátt fyrir að óskað hafi verið eftir því hafa lóðarhafar ekki gefið nánari upplýsingar um það hvenær þeir hyggist ljúka framkvæmdum. Minnt er á að samkvæmt 2. mgr. greinar 2.4.5. í byggingarreglugerð er byggingarfulltrúa heimilt, stöðvist framkvæmdir í eitt ár eða meira, að undangenginni aðvörun, að fella byggingarheimild eða byggingarleyfi úr gildi. Samkvæmt 3. mgr. sömu greinar er byggingarfulltrúa heimilt, stöðvist framkvæmdir í tvö ár, að taka mannvirki, byggingarefni og lóð eignarnámi. Þá er byggingarfulltrúa einnig heimilt, samkvæmt grein 2.4.6., að undangenginni aðvörun, að fella byggingarheimild og byggingarleyfi úr gildi ef eigandi mannvirkisins eða aðrir þeir sem bera ábyrgð á byggingarframkvæmdum samkvæmt lögum um mannvirki og reglugerð þessari sinna ekki fyrirmælum hans við byggingareftirlit eða gerast sekir um alvarleg eða ítrekuð brot gegn lögum um mannvirki eða reglugerðinni. Í 2. mgr. sömu greinar er vísað til þess að um úrræði vegna brota á ákvæðum laganna og reglugerðarinnar sé vísað til kafla 2.9 í reglugerðinni. Í kafla 2.9 kemur m.a. fram að sé ásigkomulagi, frágangi, umhverfi eða viðhaldi húss, annars mannvirkis eða lóðar ábótavant, af því stafar hætta eða það telst skaðlegt heilsu o.fl. geti byggingarfulltrúi lagt fyrir eiganda og umráðamann húss að bæta úr því sem áfátt er að viðlögðum dagsektum eða eftir atvikum ráðist sjálfur í slíkar lagfæringar á kostnað eiganda. Skorað er á eigendur að ljúka framkvæmdum húss og lóð við fyrsta tækifæri m.a. af tilliti til nágranna sinna og til þess að ekki þurfi að koma til beitingar einhverskonar þvingunarúrræða. Byggingarfulltrúa er falið að fylgjast með framkvæmdum á lóðinni og upplýsa nefndina um stöðu þeirra.
3. 2026100048 – Hrólfskálavör 11 - óveruleg deiliskipulagsbreyting
Sótt er um óverulega deiliskipulalagsbreytingu fyrir lóðina Hrólfskálavör 11. Sótt er um að stækka byggingarreit að norðan og vestan til að unnt verði að byggja viðbyggingu við húsið. Nýtingarhlutfall er óbreytt.
Afgreiðsla: Samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna breytingu á deiliskipulaginu, í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Hrólfskálavör 9, 12, 13 og 14.
4. 2026100076 – Neströð 7 – byggingarleyfisumsókn
Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsið Neströð 7. Að auki er sótt um tvær breytingar sem gerðar voru á húsinu af fyrri eigendum án aðkomu byggingaryfirvalda.
Húsið verður samtals 263,5 fermetrar auk 4,3 fermetrar B-rýma og lóðin er 1595 fermetrar.
Nýtingarhlutfall verður 0,17 eftir breytinguna sem samræmist óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var til kynningar á júlífundi nefndarinnar. Breytingin var grenndarkynnt án þess að athugasemd bærist frá nágrönnum.
Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
5. 2024080297 – Miðbraut 8 - byggingarleyfi - breyting á áður samþykktu erindi
Sótt er um breytingu á áður samþykktum uppdráttum af vinnustofu á lóð hússins Miðbraut 8.
Þegar framkvæmdir hófust kom í ljós að klöpp var undir fyrirhugaðri vinnustofu. Er sótt um að færa húsið til innan byggingarreits, minnka það lítillega og hækka það í landi um 32 sentímetra. Þaki hússins er jafnframt breytt þannig að það verður nú flatt í stað þess að vera hallandi eins og til stóð. Hús er eftir sem áður í samræmi við deiliskipulag lóðarinnar sem var samþykkt í bæjarstjórn 26. apríl 2023. Samkvæmt því er hámarks stærð vinnustofunnar 81,2 fermetrar en sú vinnustofa sem nú er sótt um er 69,6 fermetrar auk 10 fermetra B-rýma, samtals 79,6 fermetrar.
Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
6. 2026100094 – Erindi frá íbúa vegna umferðar um Sefgarða
Borist hefur erindi til skipulagsnefndar frá íbúa við Sefgarða sem gerir athugasemd við aðkomu að athafnasvæði bæjarins sé um Sefgarða en ekki Bygggarða en tekið er fram í aðalskipulagi bæjarins að aðkoma að aðkoman skuli vera frá Bygggörðum. Einnig koma fram áhyggjur af aukinni umferð að safnasvæði við Sefgarða í erindinu og að íbúar búi við skert lífsgæði vegna þungrar umferðar sem ekki eigi heima í húsagötu.
Afgreiðsla: Nefndin beinir því til skipulags- og umhverfissviðs að kynna fyrir íbúanum framkomna tillögu um breytingar á götumynd og umferð um Sefgarða, sbr. 1 dagskrálið.
7. 2025040112 – Staða verkefna umhverfissviðs og eignasjóðs í ágúst 2026
Lagður fram uppfærður listi yfir verkefni umhverfissviðs og eignasjóðs, þar sem kemur fram staða og forgangsröðun og staða verkefna innan sviðsins.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
8. 2024100151 – Fundartími nóvemberfundar nefndarinnar
Lögð fram tillaga um að næsti fundur nefndarinnar verði þann 19. nóvember. Fundartími klukkan 8:15-10:00.
Afgreiðsla: Ákveðið er að næsti fundur verði þann 19. nóvember 2026, kl 8:15.
Fundi slitið kl. 9:59