75. fundur skipulags- og mannvirkjanefndar haldinn mánudaginn 5. september 2005 kl. 18:00 að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.
Mættir: Inga Hersteinsdóttir, Ingimar Sigurðsson, Þórður Ó. Búason, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Stefán Bergmann og Einar Norðfjörð byggingafulltrúi.
Fundargerð ritaði Ingimar Sigurðsson.
Dagskrá:
1. Fundur settur.
2. Aðalskipulag. Á fundinn mæta fulltrúar Alta, framhald síðasta fundar.
3. Önnur mál.
4. Fundarslit.
1. Fundur settur af formanni kl. 18:05
2. Á fundinn voru mættar Sigurborg Hannesdóttir og Hlín Sverrisdóttir frá Alta. Rætt um aðalskipulagsdrögin og texti yfirfarinn. Samþykkt að senda drög að greinargerð og uppdrátt, eftir breytingar, til kynningar í ráðum, nefndum og hjá stofnunum.
3. Önnur mál voru engin.
4. Fundargerð upplesin og samþykkt, fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið kl. 20:35
Inga Hersteinsdóttir (sign)
Ingimar Sigurðsson (sign)
Þórður Ó. Búason (sign)
Ragnhildur Ingólfsdóttir (sign)
Stefán Bergmann (sign)