Fara í efni

Skipulags- og umferðarnefnd

17. desember 2014
18. fundur Skipulags- og umferðanefndar, miðvikudaginn 17. desember, 2014, kl. 8:00 að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

 

Mættir: Bjarni Torfi Álfþórsson, Anna Margrét Hauksdóttir, Ásgeir Guðmundur Bjarnason var forfallaður, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Stefán Bergmann,

Gísli Hermannsson, sviðsstjóri umhverfissviðs

Þórður Ólafur Búason,skipulags- og byggingafulltrúi

Fundarstjóri: Bjarni Torfi Álfþórsson, fundarritari: Þórður Ólafur Búason

Skipulagsmál

  1. Mál.nr. 2014060035
    Heiti máls: Aðalskipulag Seltjarnarness 2006-2014 endurskoðun.
    Lýsing:  Vinnufundur. Drög að köflum um samgöngur og fleira í greinargerð vegna aðalskipulags lögð fram. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og  Árni Geirsson frá Alta.
    Afgreiðsla: Áframhald vinnu að greinargerð aðalskipulags.

 

  1. Mál.nr. 2012020062
    Heiti máls: Kirkjugarður, grafreitur, duftgarður .
    Lýsing: Svar forstjóra Kirkjugarðanna við fyrirspurn skipulagsfulltrúa um mögulegan grafreit á Seltjarnarnesi.
    Afgreiðsla: Kynnt

Önnur mál

  1. Mál.nr. 2014100005
    Heiti máls: Lindarbraut 11, sótt um leyfi til að eldverja hlið verkstæðis á lóðunum 9 og 11 sem snýr að húsinu nr. 9 við Lindarbraut.
    Lýsing: Synjun byggingarfulltrúa vegna máls og forsaga sem áður hefur verið til umfjöllunar hjá Skipulags og umferðanefnd vegna lóðanna  nr. 9 og 11 við Lindarbraut. Sbr. máls nr 2011100005, 2012080005, 2012080005, 2014090003
    Afgreiðsla: Kynnt

 

Fundargerð lesin og samþykkt. Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl.10:16.

Bjarni Torfi Álfþórsson sign, Anna Margrét Hauksdóttir sign,  Ragnhildur Ingólfsdóttir sign, Stefán Bergmann sign, Gísli Hermannsson sign, Þórður Ólafur Búason sign.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?