Fara í efni

Skólanefnd

06. september 2017

285. (108) fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 6. september 2017, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.

Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Magnús Örn Guðmundsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir, Sjöfn Þórðardóttir, Karl Pétur Jónsson, Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Hildur Gylfadóttir, fulltrúi Foreldrafélags Leikskóla Seltjarnarness, Ólína Thoroddsen, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Kristín Sverrisdóttir og Stella Ólafsdóttir náms- og starfsráðgjafar v. Grunnskóla Seltjarnarness, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir, fulltrúi kennara v. Grunnskóla Seltjarnarness, Hervör Pálsdóttir, fulltrúi foreldra v. Grunnskóla Seltjarnarness, Margrét Sigurðardóttir forstöðumaður Frístundamiðstöðvar Seltjarnarness, Stefanía Helga Sigurðardóttir fulltrúi Ungmennaráðs Seltjarnarness og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.

Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir

Fundargerð ritaði Baldur Pálsson

  1. Skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness -skólaárið 2017-2018.
    Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, gerði grein fyrir skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness.
  2. Umsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2017010137.
    Skólanefnd samþykkti umsóknirnar með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

    Soffía Guðmundsdóttir og Hildur Gylfadóttir viku af fundi og Ólína Thoroddsen, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir, Kristín Sverrisdóttir, Stella Ólafsdóttir og Hervör Pálsdóttir komu til fundar kl.8:20.
  3. Ársskýrsla náms- og starfsráðgjafa skólaárið 2016-2017 -málsnr. 2017090002.
    Lagt fram til kynningar. Kristín Sverrisdóttir og Stella Ólafsdóttir námsráðgjafar, svöruðu spurningum.
    Kristín Sverrisdóttir og Stella Ólafsdóttir viku af fundi kl. 8:40.
  4. Skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness -skólaárið 2017-2018.
    Ólína Thoroddsen, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness.
  5. Skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness 2017-2018.
    Ólína Thoroddsen kynnti skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness.
  6. Starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness 2017-2018.
    Ólína Thoroddsen kynnti starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness.

    Ólína Thoroddsen og Þórunn Halldóra Matthíasdóttir viku af fundi og Margrét Sigurðardóttir kom til fundar kl. 9:00.
  7. Sumarstarf og skólabyrjun í Frístundamiðstöð Seltjarnarness 2017-2018.
    Margrét Sigurðardóttir, forstöðumaður Frístundamiðstöðvar Seltjarnarness, greindi frá sumarnámskeiðum og frístundastarfi við skólabyrjun.
  8. Skólabyrjun í Tónlistarskóla Seltjarnarness -skólaárið 2017-2018.

Umfjöllun frestað til næsta fundar.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 9:50.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?