Fara í efni

Skólanefnd

28. ágúst 2019

300. (123) fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 28. ágúst 2019, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.

Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Björn Gunnlaugsson, Ólína Thoroddsen, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Bjargey Aðalsteinsdóttir, fulltrúi kennara Grunnskóla Seltjarnarness, Sigrún Hallgrímsdóttir, fulltrúi foreldrafélags Grunnskóla Seltjarnarness, Kristín Sverrisdóttir, f.v. námsráðgjafi við Grunnskóla Seltjarnarness, Helga Sigríður Eiríksdóttir, námsráðgjafi við Grunnskóla Seltjarnarness, Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnanress, Áslaug Jóhannsdóttir fulltrúi starfsmanna Leikskóla Seltjarnarness, Þórey Einarsdóttir, fulltrúi Foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.

Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir

Fundargerð ritaði Baldur Pálsson

  1. Skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness -skólaárið 2019-2020 -málsnr. 2019080286.
    Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, gerði grein fyrir skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness.
  2. Umsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2019080302.
    Skólanefnd samþykkti umsóknirnar með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

    Soffía Guðmundsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir og Þórey Einarsdóttir viku af fundi kl. 8:25 og Ólína Thoroddsen, Bjargey Aðalsteinsdóttir, Sigrún Hallgrímsdóttir, Kristín Sverrisdóttir og Helga Sigríður Eiríksdóttir komu til fundar.
  3. Ársskýrsla náms- og starfsráðgjafa skólaárið 2016-2017 -málsnr. 2017090002.
    Lagt fram til kynningar. Kristín Sverrisdóttir og Helga Sigríður Eiríksdóttir námsráðgjafar, svöruðu fyrirspurnum.

    Kristín Sverrisdóttir og Helga Sigríður Eiríksdóttir viku af fundi kl. 8:40.
  4. Skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness -skólaárið 2019-2020 -málsnr. 2019080285.
    Ólína Thoroddsen, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness.
  5. Skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness 2019-2020 -málsnr. 2019080282
    Ólína Thoroddsen kynnti skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness.
  6. Starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness 2019-2020 -málsnr. 2019080283.
    Ólína Thoroddsen kynnti starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness.
  7. Námsmat og útskrift 10. bekkjar Grunnskóla Seltjarnarness -málsnr. 2019060215.
    Farið var yfir erindi frá foreldrafélagi Grunnskóla Seltjarnarness og svör skólastjórnenda við því.
    Ákvörðun hefur verið tekin um að óháður fagaðili geri skoðun á námsmati Grunnskóla Seltjarnarness.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi var slitið kl. 9:25.

Sigrún Edda Jónsdóttir (sign.)

Björn Gunnlaugsson (sign.)

Ragnhildur Jónsdóttir (sign.)

Hildur Ólafsdóttir (sign.)

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?