Fara í efni

Skólanefnd

26. ágúst 2020

308. (131) fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 26. ágúst 2020, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness. 

Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Guðmundur H. Þorsteinsson, Hildur Ólafsdóttir, Karl Pétur Jónsson, Ólína Thoroddsen, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Harpa Frímannsdóttir, fulltrúi kennara Grunnskóla Seltjarnarness, Elísabet Ingunn Einarsdóttir, fulltrúi foreldrafélags Grunnskóla Seltjarnarness, Dröfn Másdóttir, námsráðgjafi í Grunnskóla Seltjarnarness, Helga Sigríður Eiríksdóttir, námsráðgjafi í Grunnskóla Seltjarnarness, Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Áslaug Jóhannnsdóttir, fulltrúi starfsmanna Leikskóla Seltjarnarness, Jakobína Rut Hendriksdóttir, fulltrúi foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness, Kári H. Einarsson, skólastjóri Tónslistarskóla Seltjarnarness og Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs. 

Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir 
Fundargerð ritaði Baldur Pálsson 

  1. Skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness skólaárið 2020-2021 -málsnr. 2020080145.
    Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, gerði grein fyrir skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness. 

  2. Umsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness sk.árið 2020-2021 -málsnr. 2020080130 og 2020080131.
    Skólanefnd samþykkti umsóknirnar með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

    Soffía Guðmundsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir og Jakobína Rut Hendriksdóttir viku af fundi kl. 8:35 og Ólína Thoroddsen, Harpa Frímannsdóttir, Elísabet Ingunn Einarsdóttir, Dröfn Másdóttir og Helga Sigríður Eiríksdóttir komu til fundar. 

  3. Skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness skólaárið 2020-2021 -málsnr. 2020080144.
    Ólína Thoroddsen, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness. 

  4. Ársskýrsla náms- og starfsráðgjafa skólaárið 2019-2020 -málsnr. 2020060052.
    Lagt fram til kynningar. Dröfn Másdóttir og Helga Sigríður Eiríksdóttir námsráðgjafar, svöruðu fyrirspurnum.

    Dröfn Másdóttir og Helga Sigríður Eiríksdóttir viku af fundi kl. 8:55. Harpa Frímannsdóttir vék af fundi kl. 9:10.
     
  5. Skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness 2020-2021 -málsnr. 2020080142.
    Lagt fram til kynningar. 

  6. Starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness 2020-2021 -málsnr. 2020080143.
    Lagt fram til kynningar.

    Ólína Thoroddsen, Harpa Frímannsdóttir og Elísabet Ingunn Einarsdóttir viku af fundi og Kári H. Einarsson kom til fundar kl. 9:40. 

  7. Skólabyrjun í Tónlistarskóla Seltjarnarness skólaárið 2020-2021 -málsnr. 2020080255.
    Kári H. Einarsson, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Tónlistarskóla Seltjarnarness. 

  8. Inntaka nemenda í Tónlistarskóla Seltjarnarness skólaárið 2020-2021 -málsnr. 2020050280.
    Kári H. Einarsson, skólastjóri, greindi frá innritun og stöðu biðlista við Tónlistarskóla Seltjarnarness. 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum. 

Fundi var slitið kl. 9:55. 

Sigrún Edda Jónsdóttir (sign.) 
Guðmundur H. Þorsteinsson (sign.) 
Ragnhildur Jónsdóttir (sign.) 
Karl Pétur Jónsson (sign.) 
Hildur Ólafsdóttir (sign.)

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?