344. fundur skólanefndar var haldinn mánudaginn 26. nóvember 2025, kl. 08:15 í fundarherbergi bæjarskrifstofu Seltjarnarness.
Fundinn sátu: Dagbjört S. Oddsdóttir (formaður), Grétar Dór Sigurðsson, Hannes T. Hafstein, Karen María Jónsdóttir og Halla Helgadóttir.
Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.
Gestir: Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Jelena Kuzminova, fulltrúi starfsfólks Leikskóla Seltjarnarness og Rán Ólafsdóttir, fulltrúi foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness, sátu fundinn undir 1. dagskrárlið. Helga Þórdís Jónsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla, Hilmar Bjarni Hilmarsson, fulltrúi kennara við grunnskóla á Seltjarnarnesi og Tryggvi Steinn Helgason, fulltrúi foreldra við grunnskóla á Seltjarnarnesi, sátu fundinn undir 2.-6. dagskrárlið. Hildigunnur Gunnarsdóttir, varabæjarfulltrúi, sat fundinn undir 7. dagskrárlið.
1. 2025110077 Umsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness árið 2026 - viðbót.
Skólanefnd samþykkir viðbótarumsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness fyrir skólaárið 2025-2026 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Bókun: Skólanefnd felur sviðsstjóra framvegis að afgreiða umsóknir um stuðning við börn í leikskólum á Seltjarnarnesi og upplýsa nefndina árlega um úthlutaðan stuðning.
Margrét Gísladóttir, Jelena Kuzminova og Rán Ólafsdóttir viku af fundi og Helga Þórdís Jónsdóttir, Hilmar Bjarni Hilmarsson og Tryggvi Steinn Helgason komu til fundar kl. 08:30.
2. 2025110113 Samræmdar dagsetningar umsókna í grunnskóla.
Skólanefnd samþykkir ósk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu um sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla.
3. 2025100217 Skólanámskrá Mýrarhúsaskóla skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd staðfestir skólanámskrá Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
4. 2025100218 Starfsáætlun Mýrarhúsaskóla skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd staðfestir starfsáætlun Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
5. 2025100219 Skólanámskrá Valhúsaskóla skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd staðfestir skólanámskrá Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
6. 2025100220 Starfsáætlun Valhúsaskóla skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd staðfestir starfsáætlun Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
Helga Þórdís Jónsdóttir, Hilmar Bjarni Hilmarsson og Tryggvi Steinn Helgason viku af fundi kl. 09:00.
Hildigunnur Gunnarsdóttir kom til fundar kl. 09:25.
7. 2019010209 Endurskoðun skólastefnu Seltjarnarnesbæjar.
Hildigunnur Gunnarsdóttir gerði grein fyrir stöðu verkefnisins og næstu skrefum. Stefnt er að því að allir hagaðilar í skólasamfélaginu á Seltjarnarnesi fái drög að menntastefnunni til umsagnar í desember og að stefnan verði lögð fram til afgreiðslu á fundi skólanefndar í janúar.
8. 2025110132 Fundardagar skólanefndar árið 2026.
Skólanefnd samþykkir eftirfarandi dagsetningar fyrir fundi nefndarinnar fyrir árið 2026: 28. jan., 25. mars, 27. maí, 24. júní, 26. ágúst, 28. okt. og 25. nóv.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 09:57.