Fara í efni

Skólanefnd

346. fundur 25. mars 2026 kl. 08:15 - 10:10 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

346. fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026, kl. 08:15 í fundarherbergi bæjarskrifstofu Seltjarnarness.

Fundinn sátu: Dagbjört S. Oddsdóttir (formaður), Grétar Dór Sigurðsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Karen María Jónsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir. 

Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.

Gestir: Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness og Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir, fulltrúi starfsfólks Leikskóla Seltjarnarness sátu fundinn undir 1.-2. dagskrárlið. Helga Þórdís Jónsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla, Bjarki Dalsgaard Sigurþórsson, fulltrúi kennara við grunnskóla á Seltjarnarnesi og Áslaug Eva Björnsdóttir, fulltrúi foreldra við grunnskóla á Seltjarnarnesi, sátu fundinn undir 3. og 4. dagskrárlið. Kári Einarsson skólastjóri Tónlistarskóla Seltjarnarness sat fundinn undir 5. dagskrárlið

1. 2025120226 - Inntaka barna í leikskóla á Seltjarnarnesi skólaárið 2026-2027.

Sviðsstjóri og leikskólastjóri upplýstu um stöðu og gang innritunar fyrir næstkomandi skólaár.

2. 2024100215 - Nýtt leikskólafyrirkomulag - tillaga að breytingum á opnunartíma, dvalartíma barna, skipulagi innri starfsemi og gjaldskrám leikskóla á Seltjarnarnesi.

Samþykktir sem gerðar voru á 190. fundi bæjarráðs mið. 11.03.2026. (Tillaga að breytingum á reglum – nýtt skipulag leikskóla og Gjaldskrá leikskóla) voru lagðar fram til kynningar. Skólanefnd samþykkti breytingar á innritunarreglum í leikskóla á Seltjarnarnesi vegna nýs fyrirkomulags og gerir ekki athugasemd við samþykktir bæjarráðs vegna málsins. Sviðsstjóri og leikskólastjóri gerðu grein fyrir gangi mála.

Bókun: Skólanefnd vill færa starfsmönnum bæjarins kærar þakkir fyrir góða og faglega vinnu við breytingar á leikskólafyrirkomulaginu. Verkefnið hefur verið umfangsmikið og krafist samvinnu, skipulags og metnaðar, sem starfsfólk hefur leyst af hendi af alúð og ábyrgð.

Margrét Gísladóttir og Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir viku af fundi og Helga Þórdís Jónsdóttir, Bjarki Dalsgaard Sigurþórsson og Áslaug Eva Björnsdóttir komu til fundar kl. 08:50.

3. 2026030018 - Úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026-2027.

Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

4. 2026030019 - Úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2026-2027.

Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Helga Þórdís Jónsdóttir, Bjarki Dalsgaard Sigurþórsson og Áslaug Eva Björnsdóttir viku af fundi kl. 9:20.

Sjötti dagskrárliður var tekinn til umræðu.

Sigurþóra Bergsdóttir vék af fundi kl. 9:45.

Kári Einarsson kom til fundar kl. 9:50.

5. 2026030020 - Skóladagtal Tónlistarskóla Seltjarnarness skólaárið 2026-2027.

Skólanefnd staðfestir skóladagatal Tónlistarskóla Seltjarnarness fyrir skólaárið 2026-2027.

Kári Einarsson vék af fundi kl. 10:05.

6. 2019010209 - Endurskoðun skólastefnu Seltjarnarnesbæjar.

Skólanefnd samþykkir Menntastefnu Seltjarnarnesbæjar 2026-2030 og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.

7. 2026030028 - Erindi um samvinnu við Seltjarnaresbæ um leikskólastarf.

Skólanefnd hafnar erindinu og felur sviðsstjóra að svara því fyrir sína hönd.

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:10.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?