Fara í efni

Skólanefnd

347. fundur 27. maí 2026 kl. 08:15 - 10:08 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

347. fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 27. maí 2026, kl. 08:15 í fundarherbergi bæjarskrifstofu Seltjarnarness.

Fundinn sátu: Dagbjört S. Oddsdóttir (formaður), Grétar Dór Sigurðsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Karen María Jónsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir.

Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.

Gestir: Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir, fulltrúi starfsfólks Leikskóla Seltjarnarness og Rán Ólafsdóttir, fulltrúi foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness, sátu fundinn undir 1.-2. dagskrárlið. Helga Þórdís Jónsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla, Bjarki Dalsgaard Sigurþórsson, fulltrúi kennara við grunnskóla á Seltjarnarnesi og Áslaug Eva Björnsdóttir, fulltrúi foreldra við grunnskóla á Seltjarnarnesi, sátu fundinn undir 3., 4. og 5. dagskrárlið.

1. 2025120226 Inntaka barna í leikskóla á Seltjarnarnesi skólaárið 2026-2027.

Leikskólastjóri og sviðsstjóri upplýstu um inntöku barna og stöðu mönnunar í leikskólum Seltjarnarnesbæjar fyrir næstkomandi skólaár.

2. 2026050211 Starfsáætlun Leikskóla Seltjarnarness skólárið 2026-2027.

Skólanefnd staðfestir starfsáætlun Leikskóla Seltjarnarness fyrir skólaárið 2026-2027.

Margrét Gísladóttir, Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir og Rán Ólafsdóttir viku af fundi og Helga Þórdís Jónsdóttir, Bjarki Dalsgaard Sigurþórsson og Áslaug Eva Björnsdóttir komu til fundar kl. 08:45.

3. 2026040020 Samstarf um sérskóla - viljayfirlýsing.

Lagt fram. Skólanefnd fagnar viljayfirlýsingu varðandi samstarf um sérskóla og hvetur til þess að tillögur sem þar eru settar fram verði teknar til frekari eftirfylgni.

4. 2026050207 Álag í skólastarfi - ástæður og tillögur að úrbótum.

Lagt fram. Skólanefnd hvetur skólastjórnendur á Seltjarnarnesi til að taka niðurstöður skýrslunnar og tillögur skólamálanefndar SSH til umræðu í sínum skólum og að aðgerðum verði forgangsraðað til að draga úr álagi.

Karen María Jónsdóttir vék af fundi kl. 09:35.

5. 2026050248 Skólalóðir grunnskóla á Seltjarnarnesi.

Rætt var um stöðu framkvæmda á skólaloð Mýrarhúsaskóla og hugmyndir sem Hornsteinar – arkitektar lögðu fram um úrbætur á skólalóð voru lagðar fram.

Bókun:

Fulltrúar Samfylkingar og óháðra leggja áherslu á að unnin verði heildarsýn og áætlun um hvernig skólalóð Mýrahúsaskóla verði uppbyggð. Eins og staðan er núna er bara um að ræða alls kyns hugmyndir en við myndum vilja að unnin verði heildarsýn til framtíðar í nánu samstarfi við skólann, nemendur og foreldra. Við hvetjum nýja skólanefnd til að vinna áfram að slíkum tillögum þannig að Mýrahúsaskóli muni fá loks alvöru skólalóð sem verður Seltjarnarnesi til sóma.

Karen María Jónsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir.

Grétar Dór Sigurðsson vék af fundi kl. 09:45.

Helga Þórdís Jónsdóttir, Bjarki Dalsgaard Sigurþórsson og Áslaug Eva Björnsdóttir viku af fundi kl. 9:50.

6. 2026050215 Íslensku menntaverðlaunin - erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Skólanefnd felur sviðsstjóra að vinna tillögu að tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir sína hönd í samræmi við umræður á fundinum.

 

Skólanefnd þakkar öllum fulltrúum nefndarinnar, fulltrúum leik-, grunn- og tónlistarskóla, frístundar og félagmiðstöðvar, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og öðrum gestum á fundum nefndarinnar fyrir gott samstarf undafarin fjögur ár.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:08.

 

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?