Fara í efni

Skólanefnd

348. fundur 26. ágúst 2026 kl. 08:15 - 10:17 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

348. fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 26. ágúst 2026, kl. 08:15 í fundarherbergi bæjarskrifstofu Seltjarnarness.

Fundinn sátu:  Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (formaður), Elísabet Ingunn Einarsdóttir, Pétur Már Harðarson, Áslaug Eva Björnsdóttir og Auður Halla Rögnvaldsdóttir.

Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.

Gestir: Linda Björg Birgisdóttir aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir fulltrúi starfsfólks Leikskóla Seltjarnarness og Linda Ramdani, fulltrúi foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness, sátu fundinn undir 1.-3. dagskrárlið. Kristjana Hrafnsdóttir, skólastjóri Mýrarhúsaskóla, Ásta Sigvaldadóttir, fulltrúi kennara við grunnskóla á Seltjarnarnesi og Elfa Antonsdóttir, fulltrúi foreldra við grunnskóla á Seltjarnarnesi, sátu fundinn undir 4.-8. dagskrárlið. Ester Þorsteinsdóttir, námsráðgjafi Mýrarhúsaskóla, sat fundinn undir 5. dagskrárlið og Gissur Ari Kristinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs, sat fundinn undir 8. dagskrárlið.

1. 2026080242 - Skólabyrjun í leikskólum á Seltjarnarnesi skólaárið 2026-2027.

Aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness og sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir skólabyrjun við leikskóla á Seltjarnarnesi.

2. 2026080269 - Inntaka leikskólabarna, stöðumat fyrir árgang 2026 og fyrirsjáanleiki foreldra.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs svaraði fyrirspurn frá fulltrúum minnihluta í skólanefnd um inntöku leikskólabarna, stöðumat fyrir árgang 2026 og fyrirsjáanleika foreldra fyrir árið 2026.

Bókun:

Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra í skólanefnd leggja fram eftirfarandi bókun við 2. dagskrárlið. Nefndarmenn óska eftir því að verklag við inntöku leikskólabarna verði bætt. Mikilvægt er að foreldrar barna sem fædd eru 2026 séu upplýst tímanlega um hvort og þá hvenær þau geti reiknað með leikskólavist fyrir barnið sitt. Reynsla undanfarinna ára sýnir að skortur hefur verið á leikskólaplássum í bæjarfélaginu og aðgengi að öðrum úrræðum hefur verið takmarkað. Slík óvissa hefur bein áhrif á áætlanir foreldra nám og starf auk þess að hafa mögulega áhrif á áætlanir um búsetu í bæjarfélaginu. Þess er óskað að upplýsingum um stöðuna verði deilt með foreldrum strax í haust, enda ættu þær að vera tiltölulega fyrirsjáanlegar og auðsóttar.

Áslaug Eva Björnsdóttir og Auður Halla Rögnvaldsdóttir, fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.

3. 2026080272 - Erindi frá foreldraráði Leikskóla Seltjarnarness.

Lagt fram. Skólanefnd felur sviðsstjóra að fylgja eftir beiðni foreldraráðs um úttekt á lóð starfsstöðvarinnar Stjörnubrekku og hvort hún uppfylli kröfur leikskólalaga nr. 90/2008, reglugerðar nr. 655/2009 og aðalnámskrár leikskóla.

Bókun:

Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra í skólanefnd leggja fram eftirfarandi bókun við 3. dagskrárlið. Nefndarmenn styðja tillögu foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness um að aflað verði óháðs faglegs mats á starfsstöðinni Stjörnubrekku. Tillagan endurspeglar áhyggjur foreldra leikskólabarna á Stjörnubrekku um að skólalóðin sé hvorki nægilega örugg né þroskandi miðað við aldur barnanna. Telja nefndarmenn mikilvægt að úr þessu verði skorið með faglegum og óháðum hætti.

Áslaug Eva Björnsdóttir og Auður Halla Rögnvaldsdóttir, fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.

Linda Björg Birgisdóttir, Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir og Linda Ramdani, viku af fundi og Kristjana Hrafnsdóttir, Ásta Sigvaldadóttir og Elfa Antonsdóttir komu til fundar kl. 08:45.

4. 2026080243 - Skólabyrjun í grunnskólum á Seltjarnarnesi skólaárið 2026-2027.

Skólastjóri Mýrarhúsaskóla gerði grein fyrir skólabyrjun við grunnskólana á Seltjarnarnesi.

Ester Þorsteinsdóttir kom til fundar kl. 8:52.

5. 2026060117 - Skýrsla námsráðgjafa Mýrarhúsaskóla, skólaárið 2025-2026.

Skýrslan var lögð fram og rædd.

Ester Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 9:10.

6. 2026060116 - Skýrsla náms- og starfsráðgjafa Valhúsaskóla, skólaárið 2025-2026.

Skýrslan var lögð fram og rædd.

7. 2026080312 - Erindi frá foreldrafélögum Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla.

Lagt fram. Skólanefnd felur sviðsstjóra að skoða útfærslu funda skólanefnda annarra sveitarfélaga til samanburðar við útfærslu skólanefndarfunda á Seltjarnarnesi.

Bókun:

Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra í skólanefnd leggja fram eftirfarandi bókun við 7. dagskrárlið. Nefndarmenn lýsa yfir stuðningi við þá tillögu sem fram kemur í erindi frá foreldrafélögum Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla, að fyrirkomulag funda skólanefndar verði endurskoðað á þann veg að fulltrúar foreldra nemenda, auk skólastjórnenda og starfsfólks hvors grunnskóla sitji fundi þegar málefni er varða þeirra skóla eru til umfjöllunar. Slíkt fyrirkomulag er þegar við lýði gagnvart leikskólanum og hefur reynst vel. Með breyttu fyrirkomulagi væri betur tryggt að þeir sem sitja fundi fyrir hönd fulltrúa séu vel upplýstir og þekki betur til þeirra málefna sem til umræðu eru. Fyrirkomulagið er til þess fallið að auka skilvirkni funda nefndarinnar og tryggja að þær ákvarðanir sem teknar eru séu betur upplýstar. Seltjarnarnes er lítið bæjarfélag með stuttar boðleiðir og telja nefndarmenn fulla ástæðu til að nýta sér það hagræði þegar kostur er.

Áslaug Eva Björnsdóttir og Auður Halla Rögnvaldsdóttir, fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.

Gissur Ari Kristinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs, kom til fundar kl. 9:25.

8. 2026070136 - Íslenska æskulýðsrannsóknin 2026, skólaskýrslur.

Verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs gerði grein fyrir helstu niðurstöðum rannsóknarinnar vegna skóla á Seltjarnarnesi. Fjallað var um niðurstöður fyrir Valhúsaskóla, en umfjöllun um niðurstöður fyrir Mýrarhúsaskóla var frestað til næsta fundar.

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum. Fundi slitið kl. 10:17.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?