Fara í efni

Skólanefnd

47. fundur 28. október 1999

Fundinn sátu: Jónmundur Guðmarsson, Sunneva Hafsteinsdóttir, Inga Hersteinsdóttir, Árni Ármann Árnason, Gunnar Lúðvíksson frá skólanefnd, Margrét Harðardóttir grunnskólafulltrúi og Kristjana Stefánsdóttir leikskólafulltrúi

Dagskrá:

 

1.   Lagðar fram og ræddar fjárhagsáætlanir stofnana sem heyra undir fræðslumál fyrir árið 2000.

2.   Formanni falið að ræða við Ingvar Sigurgeirsson, prófessor í KHÍ, vegna úttektar á framtíðarskipulagi skólamála/skólahúsnæðis á Seltjarnarnesi.

3.   Önnur mál:

a)   Lögð fram "Athugun á leiðum til að sjá fyrir húsnæðisþörfum grunnskóla á Seltjarnarnesi næstu ár og til lengri framtíðar" frá Dr. Magga Jónssyni arkitekt.

b)   Skólanefnd samþykkir að Árni Ármann Árnason sitji í gæðaráði Mýrarhúsaskóla fyrir hönd nefndarinnar.

c)    Skólanefnd samþykkir að einstæðir foreldrar fái 40% afslátt af gjaldi í Skólaskjóli frá og með 1. desember 1999. Þar með er staða einstæðra foreldra í Skólaskjóli löguð að hinum samræmda afslætti.

d)   Lagt fram og samþykkt launalaust leyfi Þormóðs Egilssonar íþróttakennara í Mýrarhúsaskóla tímabilið 1. janúar til 31. júlí 2000.

e)   Skólanefnd óskar eftir greinargerð frá skólasálfræðingi vegna verkefnisins "Líf og leikur"

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 20:15

Fundarritari var Margrét Harðardóttir

 

Jónmundur Guðmarsson (sign)

Inga Hersteinsdóttir (sign)

Árni Á Árnason (sign)

Gunnar Lúðvíksson (sign)

Sunneva Hafsteinsdóttir (sign)



Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?