Fara í efni

Skólanefnd

36. fundur 29. júní 1999

Fundinn sátu: Jónmundur Guðmarsson, Gunnar Lúðvíksson, Árni Ármann Árnason, Inga Hersteinsdóttir og Sunneva Hafsteinsdóttir frá skólanefnd og Margrét Harðardóttir grunnskólafulltrúi og Regína Höskuldsdóttir skólastjóri Mýrarhúsaskóla.

Dagskrá:

1.    Rætt um málefni Mýrarhúsaskóla og stjórnunar- og samskiptaátak næsta vetur. Fram kom m.a. að skólastjórn verður óbreytt.

2.    Önnur mál:

a.    Aðgerðaráætlun skólanna á Seltjarnarnesi gegn einelti og ofbeldi lögð fram til kynningar.

b.    Lagðar fram upplýsingar um kostnaðartölur frá Ólafi Ólafssyni sérkennara fyrir skólagöngu nemenda í einkasérskóla.

c.    Skólanefnd samþykkir eftirtaldar kennararáðningar í Valhúsaskóla:

Anna Kristín Magnúsdóttir í 1/1 stöðu kt. 140872-3349

Steinunn María Halldórsdóttir stundakennari kt. 061077-2949

d.    Lögð fram og samþykkt uppsögn Önnu Þorsteinsdóttur kennara í Valhúsaskóla.

e.    Lögð fram lokaskýrsla frá kennurum í Mýrarhúsaskóla vegna þróunarverkefnisins "Samskipti í leik og starfi". Skólanefnd þakkar góða skýrslu og vel unnið kennsluefni.

f.     Lagðar fram upplýsingar um "Kennt og lesið" 1998/1999 frá kennurum í Valhúsaskóla. Skólanefnd þakkar gagnlegar upplýsingar.

g.    Lagt fram bréf frá foreldrafélagi Mýrarhúsaskóla vegna kaupa á hljóðkerfi fyrir skólann. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með erindið og vísar því til fjárhags- og launanefndar.

h.    Lögð fram viðbótargögn vegna málefnis nemanda í Mýrarhúsaskóla.

i.      Lögð fram drög að samningi við RKHÍ vegna mats á starfi í Valhúsaskóla.

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:30

Fundarritari var Margraét Harðardóttir

Jónmundur Guðmarsson (sign)

Gunnar Lúðvíksson (sign)

Inga Hersteinsdóttir (sign)

Sunneva Hafsteinsdóttir (sign)

Árni Ármann Árnason (sign)



Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?