Fara í efni

Skólanefnd

20. janúar 2014

260. (83) fundur skólanefndar var haldinn mánudaginn 20. janúar 2014, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.124

Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Davíð Scheving, Erlendur Magnússon, Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Ólína Thoroddsen, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir, fulltrúi kennara v. Grunnskóla Seltjarnarness, Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, Sigríður Elsa Oddsdóttir fulltrúi starfsfólks v. Leikskóla Seltjarnarness, Haukur Hauksson, fulltrúi foreldra v. Leikskóla Seltjarnarness og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.

Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir

Fundargerð ritaði Baldur Pálsson

  1. Sumarlokun Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2014010033.
    Skólanefnd samþykkir sumarlokun og felur leikskólastjóra kynningu á hennar.
  2. Samstarf vegna leikskólabarna -málsnr. 2014010035.
    Skólanefnd samþykkir erindið og felur leikskólastjóra eftirfylgni við það.
  3. Umsókn um stuðning við barn í Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2014010036.
    Skólanefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um samþykki fjárhags- og launanefndar.

    Ólína Thoroddsen, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir og Gylfi Gunnarsson komu til fundar kl. 08:15.
  4. Fundartími skólanefndar 2014.
    Eftirfarandi fundartímar voru samþykktir fyrir skólanefnd Seltjarnarness árið 2014: 20. janúar, 12. mars, 23. apríl, 21. maí, 11. júní, 20. ágúst, 3. september, 15. október og 19. nóvember.
  5. Vinnustaðagreining -kynning á niðurstöðum fyrir stofnanir á fræðslusviði.
    Fræðslustjóri kynnti helstu niðurstöður fyrir stofnanir á fræðslusviði.

    Soffía Guðmundsdóttir, Sigríður Elsa Oddsdóttir, Haukur Hauksson og Gylfi Gunnarsson viku af fundi kl. 08:40.
  6. Hreyfistefna á yngsta stigi Grunnskóla Seltjarnarness -málsnr. 2014010040.
    Skólanefnd samþykkir ályktun um hreyfistefnu.
  7. Þróunarverkefni í Grunnskóla Seltjarnarness -málsnr. 2014010034.
    Skólanefnd samþykkir umsókn um styrk til þróunarverkefnis í Grunnskóla Seltjarnarness.

    Guðlaug Sturlaugsdóttir og Kristjana Hrafnsdóttir komu til fundar kl. 08:55.
  8. Erindi v. nemanda í Grunnskóla Seltjarnarness -málsnr. 2013120002.
    Guðlaug Sturlaugsdóttir og Kristjana Hrafnsdóttir mættu til fundar undir þessum lið.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 09:55.

Sigrún Edda Jónsdóttir (sign)

Davíð Birgisson Scheving (sign)

Erlendur Magnússon (sign)

Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir (sign)

Hildigunnur Gunnarsdóttir (sign)

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?