Fara í efni

Skólanefnd

09. september 2015

269. (92) fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 9. september 2015, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.

Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Magnús Örn Guðmundsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Karl Pétur Jónsson, Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Ólina Thoroddsen, aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir, fulltrúi kennara v. Grunnskóla Seltjarnarness, Garðar Svavar Gíslason, fulltrúi foreldra v. Grunnskóla Seltjarnarness, Anna Harðardóttir, aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Sigríður Elsa Oddsdóttir, fulltrúi starfsmanna Leikskóla Seltjarnarness, Svana Margrét Davíðsdóttir, fulltrúi foreldra v. Leikskóla Seltjarnarness, Kári Húnfjörð Einarsson, skólastjóri Tónlistarskóla Seltjarnarness, Benedikt Bjarnason, fulltrúi Ungmennaráðs Seltjarnarness og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.

Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir

Fundargerð ritaði Baldur Pálsson

  1. Skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness -skólaárið 2015-2016.
    Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness.
  2. Skýrsla námsráðgjafa Grunnskóla Seltjarnarness -málsnr. 2015080487
    Lagt fram til kynningar. Rannveig Óladóttir, námsráðgjafi, svaraði spurningum nefndarmanna.

    Rannveig Óladóttir vék af fundi kl. 8:25.
  3. Skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness skólaárið 2015-2016.
    Guðlaug Sturlaugsdóttir kynnti skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness.
  4. Starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness skólaárið 2015-2016.
    Guðlaug Sturlaugsdóttir kynnti starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness.

    Anna Harðardóttir, Sigríður Elsa Oddsdóttir og Svana Margrét Davíðsdóttir komu til fundar kl. 08:40.
  5. Þjóðarsáttmáli um læsi -málsnr. 2015030028.
    Lagt fram til kynningar.

    Guðlaug Sturlaugsdóttir, Ólína Thoroddsen, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir og Garðar Svavar Gíslason viku af fundi kl.9:00.
  6. Skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness -skólaárið 2015-2016.
    Anna Harðardóttir gerði grein fyrir skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness.

    Bókun: Skólanefnd vill færa til bókar að framkvæmdir við lóðir og húsnæði leik.- og grunnskóla hafa ekki gengið sem skildi og ítrekar að framkvæmdaáætlun fyrir hvert sumar verði að ná fram að ganga á lokunartíma skólanna.
  7. Starfsáætlun Leikskóla Seltjarnarness skólaárið 2015-2016 -málsnr. 2015080498.
    Skólanefnd samþykkir starfsáætlun Leikskóla Seltjarnarness fyrir skólaárið 2015-2016.
  8. Umsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2015010050.
    Skólanefnd samþykkti umsóknirnar með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
  9. Innritunarreglur í Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2015080500.
    Skólanefnd samþykkti tillögu fræðslustjóra um breytingu á innritunarreglum fyrir Leikskóla Seltjarnarness.

    Hildigunnur Gunnarsdóttir vék af fundi kl.9:30.
  10. Samstarf vegna leikskólabarna skólaárið 2015-2016 -málsnr. 2015090074.
    Skólanefnd samþykkti styrk að upphæð kr. 200.000,- til samstarfsverkefnis.

    Kári Húnfjörð Einarsson kom til fundar kl. 09:30. Anna Harðardóttir, Sigríður Elsa Oddsdóttir og Svana Margrét Davíðsdóttir viku af fundi.
  11. Skólabyrjun í Tónlistarskóla Seltjarnarness -skólaárið 2015-2016.
    Kári Húnfjörð Einarsson, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Tónlistarskóla Seltjarnarness.
  12. Nám á framhaldstigi í tónlist -málsnr. 2015080490.
    Lagt fram til kynningar.

    Karl Pétur Jónsson vék af fundi kl. 9:45.
  13. Daggæsla í heimahúsum.
    Skólanefnd frestar umræðu um málið.

    Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
    Fundi slitið kl. 9:55.

Sigrún Edda Jónsdóttir (sign.)

Magnús Örn Guðmundsson (sign.)

Karl Pétur Jónsson (sign.)

Hildigunnur Gunnarsdóttir (sign.)

Guðmundur Ari Sigurjónsson (sign.)

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?