Fara í efni

Skólanefnd

14. september 2016

277. (100) fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 14. september 2016, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.

Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Magnús Örn Guðmundsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Karl Pétur Jónsson, Ólína Thoroddsen, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Kristín Lárusdóttir, fulltrúi kennara v. Grunnskóla Seltjarnarness, Svana Margrét Davíðsdóttir, fulltrúi foreldra v. Grunnskóla Seltjarnarness, Kristín Sverrisdóttir námsráðgjafi v, Grunnskóla Seltjarnarness, Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Halldóra Reykdal Tryggvadóttir, fulltrúi starfsmanna Leikskóla Seltjarnarness, Ragnhildur Jónsdóttir, fulltrúi foreldra v. Leikskóla Seltjarnarness og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.

Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir

Fundargerð ritaði Baldur Pálsson

  1. Skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness -skólaárið 2016-2017.
    Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, gerði grein fyrir skólabyrjun í Leikskóla Seltjarnarness.
  2. Umsóknir um stuðning við börn í Leikskóla Seltjarnarness -málsnr. 2016090019 .
    Skólanefnd samþykkti umsóknirnar með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
  3. Samstarf vegna leikskólabarna skólaárið 2016-2017 -málsnr. 2016090066.
    Skólanefnd samþykkti styrk til samstarfsverkefnis fyrir allt skólaárið.
    Soffía Guðmundsdóttir, Halldóra Reykdal Tryggvadóttir og Ragnhildur Jónsdóttir viku af fundi kl.8:20.
  4. Skólabyrjun í Tónlistarskóla Seltjarnarness -skólaárið 2016-2017.
    Dagskrárlið frestað.

    Ólína Thoroddsen, Kristín Lárusdóttir Kristín Sverrisdóttir og Svana Margrét Davíðsdóttir komu til fundar kl.8:30.
  5. Skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness -skólaárið 2016-2017.
    Ólína Thoroddsen, skólastjóri, greindi frá skólabyrjun í Grunnskóla Seltjarnarness.

    Guðmundur Ari Sigurjónsson vék af fundi kl. 8:50.
    Kristín Sverrisdóttir kom til fundar kl. 8:55.
  6. Skýrsla náms- og starfsráðgjafa Grunnskóla Seltjarnarness -málsnr. 2016090059.
    Lagt fram til kynningar. Kristín Sverrisdóttir, námsráðgjafi, svaraði spurningum nefndafulltrúa.

    Kristín Sverrisdóttir og Kristín Lárusdóttur viku af fundi kl. 9:25.
  7. Skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness skólaárið 2016-2017.
    Ólína Thoroddsen kynnti skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness.
  8. Starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness skólaárið 2016-2017.
    Ólína Thoroddsen kynnti starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness.
  9. Úthlutun til Grunnskóla Seltjarnarness skólaárið 2016-2017 -málsnr. 2016030042.
    Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
  10. Hvatning Velferðarvaktarinnar vegna kostnaðarþáttöku foreldra -málsnr. 2016090060.
    Lagt fram til kynningar. Skólastjóra Grunnskóla Seltjarnarness var falið að skoða kostnað og fyrirkomulag innkaupa fyrir næsta skólaár.
  11. Nýjar endurskoðaðar verklagsreglur fagráðs um einelti -málsnr. 2016090064.
    Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 9:55.

Sigrún Edda Jónsdóttir (sign.)

Magnús Örn Guðmundsson (sign.)

Guðmundur Ari Sigurjónsson (sign.)

Hildigunnur Gunnarsdóttir (sign.)

Karl Pétur Jónsson (sign.)

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?