Fara í efni

Stjórn veitustofnana

21. mars 2017

122. fundur hjá Veitustofnun Seltjarnarness haldinn þriðjudaginn 21. mars 2017 kl. 16:15 að Austurströnd 2.

Mættir: Ásgerður Halldórsdóttir, Axel Kristinsson, Lýður Þór Þorgeirsson og Magnús Dalberg.

Gísli Hermannsson sviðstjóri var í fríi.

Guðmundur Jón Helgason boðaði forföll.

Undir lið 2. mætti Hrefna Kristmannsdóttir.

Dagskrá:

  1. Ársreikningur 2016.
    Formaður lagði fram aðalbók ársins 2016, á næsta fundi nefndarinnar mætir endurskoðandi bæjarins og fer yfir ársreikning ársins 2016.

  2. Vinnslueftirlit 2016-2017

    Hrefna Kristmannsdóttir afhenti skýrslu um vinnslueftirlit ársins 2016-2017. Einnig fór hún yfir niðurstöður eftirlitsins. Meginniðurstöður vinnslueftirlitsins eru þær að vinnsla minnkaði milli ára. –Jókst í SN-04, en minnkaði í öllum hinum og mest úr holu SN-05. Almennt er vinnslan ekki mikil áraun á jarðhitakerfið. Formaður þakkar HK fyrir góða kynningu og greinargóða skýrslu.

  3. Skolpdælistöð við Elliða.

    Stöðin hefur verið tekin í notkun, formaður leggur til að stöðin verði skoðuð á næsta fundi stjórnar.

  4. Framkvæmdir í vetur.
    Hefðbundið viðhaldsverkefni hafa verið í vetur ásamt leka leit.

  5. Framkvæmdir í sumar og næstu mánuði.

    Farið verður í að leggja stofnlagnir frá Lindarbraut að Bygggörðum. Einnig verða vatnslagnir á Melabraut nr. 2 að Hæðarbraut endurnýjaðar við endurhönnun á götunni.

Fundi slitið kl. 17:45

Ásgerður Halldórsdóttir (sign.), Lýður Þór Þorgeirsson, (sign) Axel Kristinsson (sign), Magnús Dalberg (sign.),

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?