Fara í efni

Stjórn veitustofnana

29. mars 2017

123. fundur hjá Veitustofnun Seltjarnarness haldinn miðvikudaginn 29. mars 2017 kl. 16:15 að Austurströnd 2.

Mættir: Ásgerður Halldórsdóttir, Guðmundur Jón Helgason, Lýður Þór Þorgeirsson og Magnús Dalberg.

Gísli Hermannsson sviðstjóri var í fríi.

Axel Kristinsson boðaði forföll.

Undir lið 1. mætti Auðunn Guðjónsson og Guðný Helga Guðmundsdóttir,endurskoðendur KPMG.

Dagskrá:

  1. Ársreikningur Frá-, Vatns- og Hitaveitu Seltjarnarnesbæjar árið 2016.
    Á fundinn kom Auðunn Guðjónsson endurskoðandi frá KPMG.
    Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri veitnanna á árinu 2016, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
    Formaður bar upp ársreikningana til samþykktar samkvæmt 3.mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
    Ársreikningur vatns-, frá- og hitaveitu fyrir árið 2016 var samþykktur með 3 atkvæðum og 1 á móti.

Fundi slitið kl. 17:00

Ásgerður Halldórsdóttir (sign.), Lýður Þór Þorgeirsson, (sign), Guðmundur Jón Helgason og Magnús Dalberg (sign.).

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?