169. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunni, fimmtudaginn 12. júní 2025 kl. 16:00.
Mættir: Svana Helen Björnsdóttir, formaður veitustjórnar sem stýrði fundi, Guðmundur Jón Helgason, Garðar Gíslason, Bjarni Torfi Álfþórsson og Örn Viðarsson.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. 2024060090 - Fjárhagsstaða veitna á fyrsta ársþriðjungi
Farið yfir fjárhag veitna og rekstursuppgjör veitustofnana Seltjarnarness fyrstu fjóra mánuði ársins 2025.
Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir rekstrartölur veitustofnana Seltjarnarnesbæjar1.1 – 30.04 2025 veitna. Tölur líta vel út og við virðumst vera á áætlun með hverja veitu fyrir sig. Veitustjóra falið að rýna betur í liðinn sameiginlegur kostnaður hjá hverri veitu. Stefnt að því að leggja hálfsársuppgjör fram á fyrsta fundi eftir sumarleyfi.
2. 2025060083 - Vinnslueftirlit hitaveitu, framtíðaráætlun
Áætlun og umræða um það hvernig vinnslueftirlit hitaveitu skuli fara fram næstu árin
Afgreiðsla: Rætt um framíðarfyrirkomulag vinnslueftirlits hitaveitu Seltjarnarness. Veitustjóra falið að koma með tillögur fyrir næsta fund veitustjórnar. Snjallmælavæðing einnig rædd og veitustjóra falið að kynna mögulega kosti þess á næsta fundi.
3. 20252024110158 - Framkvæmdir 2025
Yfirferð á framkvæmdum í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu á árinu 2025.
Afgreiðsla: Veitustjóri greindi frá framvindu þeirra verkefna sem í gangi eru og unnin hafa verið á árinu 2025. Einnig greindi hann frá fyriráætlunum um verkefni sem eru á döfinni er á næstunni.
Fundi slitið kl.17:55