172. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunni, þriðjudaginn 21. október 2025 kl. 16:00.
Mættir: Svana Helen Björnsdóttir, formaður veitustjórnar sem stýrði fundi, Þór Sigurgeirsson, Guðmundur Jón Helgason, Garðar Svavar Gíslason, Bjarni Torfi Álfþórsson.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. 2025080248 - Fjárhagsstaða veitna
Farið yfir fjárhag veitna og rekstursuppgjör veitustofnana Seltjarnarness fyrstu 8 mánuði ársins 2025.
Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir rekstrartölur veitustofnana Seltjarnarnesbæjar fyrir fyrstu 8 mánuði ársins 2025. Einnig var farið yfir tillögur að fjárfestingum veitustofnana 2026 og 2027.
2. 20252024110158 – Staða verkefna 2025
Yfirferð um framkvæmdir í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu á árinu 2025.
Yfirferð um nauðsynlegar framkvæmdir í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu á næstu árum.
Afgreiðsla: Veitustjóri greindi frá framvindu þeirra verkefna sem í gangi eru og unnin hafa verið á árinu 2025. Rætt um verkefni sem að þarf að vinna á næstu 2 árum.
Fundi slitið kl. 17:23