175. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarherbergi skipulags- og umhverfissviðs á Austurströnd 4, miðvikudaginn 4. febrúar 2026 kl. 16:00.
Mættir: Svana Helen Björnsdóttir formaður sem stýrði fundi, Þór Sigurgeirsson Bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason, Garðar Svavar Gíslason og Svava G. Sverrisdóttir, fjármálastjóri sem sat fundinn undir 1. Lið og 2. lið.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. Óendurskoðað uppgjör veitustofnana fyrir árið 2025 lagt fram og rætt, þ.e. hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
Farið yfir fjárhag veitna og rekstursuppgjör veitustofnana Seltjarnarness ársins 2025.
Afgreiðsla: Fjármálastjóri fór yfir óendurskoðað uppgjör veitustofnana Seltjarnarnesbæjar 2025.
2. Launakostnaður og skiptingu hans milli einstakra veitustofnana.
Farið yfir launamál starfmanna veitustofnanna og hvernig skipting þeirra er milli stofnanna.
Afgreiðsla: Fjármálastjóri fór yfir þessa liði með stjórn.
3. Fyrirætlanir og möguleikar á að taka upp snjallmæla á næstunni.
Yfirferð um stöðu mála í innleiðingu á snjallmælum fyrir hitaveitu Seltjarnarness.
Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir stöðu á innleiðingu snjallmæla í bæjarfélagið og greindi frá þeim kostum sem hitaveitan mun hafa af því.
4. Staða framkvæmda.
Staða verkefna skv. framkvæmdaáætlun.
Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir það hvernig gengið hefur að vinna eftir framkvæmdaáætlun sl. ár. Einnig fór hann yfir stöðu „stærri“ verkefna eins og endurvirkjun borholu sn-04, breytingar á dælustöðinni Elliða til að auka dælugetu og vandann sem fylgir því að elta leka í bæjarfélaginu.
Fundi slitið kl. 17:35