Fara í efni

Stjórn veitustofnana

176. fundur 17. mars 2026 kl. 15:00 - 16:34 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi

176. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á Austurströnd 2, þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 15:00.

Mættir: Svana Helen Björnsdóttir formaður sem stýrði fundi, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason og Garðar Svavar Gíslanson. Svava G. Sverrisdóttir, fjármálastjóri og Sturla Jónsson endurskoðandi sátu fundinn undir 1. Lið.

Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.

Dagskrá:

1. 2025080248 – Ársreikningar Veitustofnana Seltjarnarness

Sturla Jónsson endurskoðandi mætti á fundinn og kynnti ársreikninga Veitna. Ársreikningar hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu lagðir fram til samþykktar.

Afgreiðsla: Reikningar samþykktir samhljóða og sendir í rafræna undirritun.

2. 2025100135 - Framkvæmdaáætlun 2026 - 2027

Yfirferð um nauðsynlegar framkvæmdir í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu á næstu árum.

Afgreiðsla: Veitustjóri kynnti framkvæmdaráætlun. Framkvæmdaáætlun var samþykkt samhljóða.

3. 2026020012 - Staða á innleiðingu snjallmæla

Yfirferð um stöðu mála í innleiðingu á snjallmælum fyrir hitaveitu Seltjarnarness.

Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir stöðu á innleiðingu snjallmæla í bæjarfélagið og þeim breytingum sem að verða gerðar eftir að þeir eru komnir upp hjá hitaveitu og innheimtu. Stjórn felur veitustjóra að halda áfram með innleiðingu snjallmæla.

4. Önnur mál

Farið yfir tjón sem varð á fasteigninni Nesbala 112 og leka sem varð nýlega í Sævargörðum.

Afgreiðsla: Farið yfir hvað gerðist á Nesbala 112 og rætt hvort hitaveitan gæti komið til móts við íbúana og greitt hluta af tjóninu. Veitustjóri sýndi stjórn myndir af ónýtri annborunn sem að orsakaði leka í Sævargörðum og fór yfir mikilvægi þess að staðsetja svona búnað og skipta honum út áður en að fleiri lekar verða.

 

Fundi slitið kl.16:34

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?