Fara í efni

Stjórn veitustofnana

177. fundur 30. apríl 2026 kl. 15:00 - 17:00 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi

177. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á Austurströnd 2, fimmtudaginn 30. apríl 2026 kl. 15:00.

Mættir: Svana Helen Björnsdóttir formaður sem stýrði fundi, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason og Garðar Svavar Gíslason. Svava G. Sverrisdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir 1. lið.

Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.

Dagskrá:

1. 2025080248 – Staða fjármála á fyrsta ársfjórðungi 2026

Farið yfir tölur fyrir fyrstu 3 mánuði ársins.

Afgreiðsla: Svava G. Sverrisdóttir kynnti rekstrartölur fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við í fyrra.

2. 2026020012 – Staða á innleiðingu snjallmæla

Yfirferð um stöðu mála í innleiðingu á snjallmælum fyrir hitaveitu Seltjarnarness.

Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir stöðu á innleiðingu snjallmæla fyrir hitaveitu í bæjarfélagið.

3. Önnur mál – Verkefni á döfinni

Helstu verkefni hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu á árinu 2026.

Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir og kynnti helstu verkefni hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu á þessu ári. Þau rædd.

 

Fundi slitið kl. 17:00

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?