178. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á Austurströnd 2, fimmtudaginn 28. maí 2026 kl. 15:00.
Mættir: Svana Helen Björnsdóttir formaður sem stýrði fundi, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason og Garðar Svavar Gíslason. Svava G. Sverrisdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir 1. lið.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. 2025080248 – Staða fjármála á fyrsta ársfjórðungi 2026
Farið yfir tölur fyrir fyrstu 3 mánuði ársins.
Afgreiðsla: Fjármálastjóri kynnti rekstrartölur fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við í fyrra. Veitustjóri leggur til að hækka daggjald á hitaveitumælum við snjallmælavæðingu. Stjórn samþykkir tillögu veitustjóra samhljóða og felur veitustjóra og fjármálastjóra að vinna málið áfram.
2. 2026020012 – Staða á innleiðingu snjallmæla
Yfirferð um stöðu mála í innleiðingu á snjallmælum fyrir Hitaveitu Seltjarnarness.
Afgreiðsla: Veitustjóri upplýsti um hversu langan tíma áætlað er að innleiðing snjallmæla taki miðað við núverandi stöðu. Stefnt er á að innleiðingu ljúki fyrri hluta árs 2028.
3. Önnur mál – Verkefni á döfinni
Helstu verkefni hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu á til áramóta 2027.
Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir og kynnti helstu verkefni hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu á þessu ári. Einnig var farið yfir spennandi hluti sem að voru skoðaðir á IFAT 2026.
Formaður stjórnar þakkaði stjórnarmönnum samstarfið á tímabilinu og stjórn þakkar veitustjóra fyrir afar gott samstarf á liðnum árum.
Fundi slitið kl. 18:03