179. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarherbergi skipulags- og umhverfissviðs á Austurströnd 4, mánudaginn 7. september 2026 kl. 16:00.
Mættir: Örn Viðar Skúlason formaður sem stýrði fundi, Elísabet Einarsdóttir, Björn Jóhannesson, Egill Ö. Hermannson, Guðmundur Gíslason og . Svava G. Sverrisdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir 1. lið.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. Rekstur veitna á fyrstu 6 mánuðum ársins og horfur fyrir árið 2026
Afgreiðsla: Fjármálastjóri kynnti rekstrartölur fyrstu 6 mánuði ársins miðað við áætlun.
2. Helstu framkvæmdir sem voru í gangi í sumar og verða á dagskrá í haust.
Afgreiðsla: Yfirferð um framkvæmdir í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
3. Almenn staða veitnanna og stærri verkefni 2027
Afgreiðsla: Yfirferð um nauðsynlegar framkvæmdir í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu á næstu árum.
4. Ákveða dagsetningu fyrir skoðunarferð stjórnar um athafnasvæði veitna á Seltjarnarnesi.
Afgreiðsla: Dagsetning skoðunarferðar nefndarmanna og varamanna um helstu athafnasvæði veitna á Seltjarnarnesi.
5. Fundardagskrá, mánaðarlegir fundir, í byrjun hvers mánaðar, frí í júlí og ágúst
Afgreiðsla: Útbúin fundardagskrá fyrir komandi tíð