180. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á Austurströnd 5, fimmtudaginn 15. október 2026 kl. 16:00.
Mættir: Örn Viðar Skúlason formaður sem stýrði fundi, Elísabet Einarsdóttir, Björn Jóhannesson, Egill Ö. Hermannson, Skafti Harðarson og . Svava G. Sverrisdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir 1. lið.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. 400309-Fjárhagsyfirlit veitna
Farið yfir tölur hjá hverri veitu fyrir sig.
Afgreiðsla: Svava G. Sverrisdóttir fjármálastjóri fór yfir fjárhagsyfirlit fyrir hverja veitu fyrir sig fyrir tímabilið Janúar-Ágúst.
2. 400311 -Staða á innleiðingu snjallmæla
Yfirferð um stöðu mála í innleiðingu á snjallmælum fyrir Hitaveitu Seltjarnarness.
Afgreiðsla: Veitustjóri upplýsti um stöðu mála í uppsetningu snjallmæla, fór yfir hversu margir mælar hafa verið settir upp, hvernig uppsetning gengur og hvernig gengur að lesa af þeim og nýta þessar upplýsingar til hins betra.
3. 400312 - Verkefni unnin undanfarið
Farið yfir helstu verkefni í vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu síðustu misseri um stöðu mála í innleiðingu á snjallmælum fyrir Hitaveitu Seltjarnarness.
Afgreiðsla: Veitustjóri fór yfir helstu verkefni, svo sem leka í vatnsveitu á Selbraut, stöðu í borholu 4, svínun lagna í fráveitu, hreinsun og myndun lagna til að ástandsmeta fráveitu og mikla endurnýjun á Hitaveitulögnum í Eiðismýri.
4. 400314 - Vettvangsferð nýrrar veitustjórnar
Farið yfir vettvangsferð nýrrar veitustjórnar sem er framundan
Afgreiðsla: Veitustjórn fer á nokkra spennandi staði í bæjarfélaginu og skoðar hvernig búnaður veitnanna vinnur, skoðað verður vatnsinntak bæjarins, Skólpdælustöðin á Nesvegi, Borhola SN-12 í snoppu og Dælustöð hitaveitunnar á Lindarbraut 13a.
5. 400315 - Önnur mál
Farið yfir ýmislegt annað sem að nefndarmenn vildu koma á framfæri
Afgreiðsla: komið inn á vatnsveitugjald og fráveitugjald í bæjarfélaginu.
Fundi slitið kl. 17:47