Fara í efni

Stjórn veitustofnana

01. apríl 2012

100. fundur hjá Veitustofnun Seltjarnarness haldinn fimmtudaginn 1. apríl 2012 kl. 17:00 að Austurströnd 2.

Mættir: Ásgerður Halldórsdóttir, Guðmundur Jón Helgason, Sjöfn Þórðardóttir, Friðrik Friðriksson og Magnús Dalberg.

Áheyrnarfulltrúi: Jens Andrésson.

Einnig sat fundinn Stefán Eiríkur Stefánsson veitustjóri og Gunnar Lúðvíksson.

Dagskrá:

  1. Ársreikningur Frá-, Vatns- og Hitaveitu Seltjarnarnesbæjar árið 2011.
    Á fundinn kom Auðunn Guðjónsson endurskoðandi frá KPMG.
    Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri veitnanna á árinu 2011, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
    Formaður bar upp ársreikningana til samþykktar samkvæmt 3.mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
    Ársreikningur Veitnanna fyrir árið 2011 var samþykktur með fjórum atkvæðum gegn einu.
  2. Önnur mál.
    Formaður f.h. stjórnar þakkaði veitustjóra og starfsmönnum veitna fyrir vel unnin störf á liðnu ári.

Fleira ekki tekið fyrir.

Fundi slitið kl. 17:50

Ásgerður Halldórsdóttir (sign.), Guðmundur Jón Helgason (sign.), Sjöfn Þórðardóttir (sign.), Friðrik Friðriksson (sign), Jens Andrésson (sign) og Magnús Dalberg (sign.).

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?