Fara í efni

Stjórn veitustofnana

19. apríl 2013

106. fundur hjá Veitustofnun Seltjarnarness haldinn fimmtudaginn 19. 

apríl 2013 kl. 12:00 að Austurströnd 2.

Mættir: Ásgerður Halldórsdóttir, Guðmundur Jón Helgason, Friðrik Friðriksson, Jens Andrésson og Sjöfn Þórðardóttir.

Áheyrnarfulltrúi: Magnús Dalberg.

Einnig sat fundinn Stefán Eiríkur Stefánsson veitustjóri og Gunnar Lúðvíksson fjármálastjóri.

Dagskrá:

  1. Ársreikningur Frá-, Vatns- og Hitaveitu Seltjarnarnesbæjar árið 2012.
    Á fundinn kom Auðunn Guðjónsson endurskoðandi frá KPMG.
    Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri veitnanna á árinu 2012, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
    Formaður bar upp ársreikningana til samþykktar samkvæmt 3.mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
    Ársreikningur Veitnanna fyrir árið 2012 var samþykktur samhljóða.
  2. Önnur mál.
    Formaður f.h. stjórnar þakkaði veitustjóra og fjármálastjóra fyrir vel unnin störf á liðnu ári.
    Veitustjóri fór yfir helstu verkefni í sumar.

Fleira ekki tekið fyrir.

Fundi slitið kl. 13:00

Ásgerður Halldórsdóttir (sign.), Guðmundur Jón Helgason (sign.), Sjöfn Þórðardóttir (sign.), Friðrik Friðriksson (sign), Jens Andrésson (sign) og Magnús Dalberg (sign.).

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?