Fara í efni

Umhverfisnefnd

13. september 2022

315. fundur umhverfisnefndar haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness, þriðjudaginn 13. september, 2022 kl. 08:08

Nefndarmenn:
Grétar Dór Sigurðsson, formaður,
Hannes Tryggvi Hafstein, varaformaður,
Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir, aðalmaður
Stefán Bergmann, aðalmaður
Magnea Gylfadóttir, aðalmaður

Starfsmenn:
Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri
Ingimar Ingimarsson, garðyrkjustjóri

Fundargerð ritaði: Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri


Dagskrá:

1. 2022060127 - Umhverfisviðurkenningar 2022

Lagðar fram tilnefningar til umhverfisviðurkenninga árið 2022.

Farið yfir innsendar tilnefningar og umhverfisviðurkenningar valdar. Val nefndarinnar verður kynnt síðar.


2. 2022090064 - Samþykkt um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi

Lögð fram samþykkt um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi sem samþykkt var í heilbrigðisnefnd 29. ágúst sl.

Umhverfisnefnd samþykkir framlagða samþykkt um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.


3. 2022090089 - Samþykkt um kattahald á Seltjarnarnesi, athugasemdir og ábendingar

Lagðar fram athugasemdir og ábendingar Jóns Hjaltasonar, dagsettar 5. september 2022, við samþykkt um kattahald á Seltjarnarnesi.

Umhverfisnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að leggja samþykkt um kattahald á Seltjarnarnesi fyrir næsta fund nefndarinnar.


4. 2022090076 - Blómengi við Suðurströnd

Lagt fram erindi Ingimars Ingimarssonar, garðyrkjustjóra Seltjarnarnesbæjar, varðandi gerð blómengis við Suðurströnd. Gerð blómengja er tilraunaverkefni sem hrundið hefur verið af stað í nokkrum borgum í Evrópu til að reyna að afturkalla áhrif manna á umhverfi sitt.

Umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið og felur garðyrkjustjóra að útfæra plöntuval, afmarka verkefnið betur og leggja tillögu fyrir næsta fund.


Önnur mál.

Umræður um þróun gróðurs á vestursvæðinu.

Starfsmanni umhverfisnefndar falið að taka saman minnisblað og leggja fyrir næsta fund.


Sjósundsskýli við Kotagranda.

Starfsmanni umhverfisnefndar falið að boða arkítekt skýlisins á næsta fund nefndarinnar.


Grjóthrúga við göngustíg við Snoppu.

Umhverfisnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að láta fjarlægja hrúguna sem fyrst.


Næsti fundur ákveðin þriðjudaginn 25. október kl. 08:15


Fundi slitið 09:40

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?