Fara í efni

Umhverfisnefnd

25. október 2022

316. fundur umhverfisnefndar haldinn í fundarsal umhverfissviðs Seltjarnarnesbæjar, þriðjudaginn 25. oktober, 2022 kl. 08:15

Nefndarmenn: Grétar Dór Sigurðsson formaður, Hannes Tryggvi Hafstein varaformaður, Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir aðalmaður, Stefán Bergmann aðalmaður, Magnea Gylfadóttir aðalmaður

Starfsmenn: Ingimar Ingimarsson, garðyrkjustjóri

Fundargerð ritaði: Ingimar Ingimarsson, garðyrkjustjóri

Dagskrá:

1. 2022090076 - Blómengi við Suðurströnd

Lögð fram endurbætt útgáfa af blómengi við Suðurströnd.

Farið yfir. Nefndin tekur vel í tillögu garðyrkjustjóra.


2. 2022090089 - Samþykkt um kattahald á Seltjarnarnesi, athugasemdir og ábendingar

Starfsmaður nefndarinnar fór yfir minnisblað varðandi samþykktir um kattahald á Seltjarnarnesi.

Umhverfisnefnd leggur áherslu á að núgildandi samþykkt um kattahald sé framfylgt einkum hvað varðar skráningu. Eftirlit og upplýsingagjöf í kringum varptíma verði efld.


3. 2021080052 - Fyrirspurn um útilistaverk við Hrólfsskálavör 2

Krstján Örn Kjartansson og Elísabet Brynhildardóttir kynntu verkefnið Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

Nefndin frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.


4. 2022100175-Sjósundsskýli við Kotagranda - endurnýjun 2022

Margrét Leifsdóttir kynnti hugmynd sína um sjósundsskýli

Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

Nefndin óskar eftir frekari upplýsingum um útfærslu og kostnað.


5. 2022100174 - Laufið-græn íslensk upplýsingamiðlun

Bjarki Pétursson kynnti verkefnið Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.


6. 2022100173 - Grjóthrúga við göngustíg á Snoppu

Sviðstjóri skipulags -og umhverfissviðs fór yfir málið.

Umhverfisnefnd leggur áherslu á að grjóthrúgan verði færð gegn staðfestingu vegagerðarinnar um að efnið sé nýtilegt í sjóvarnargarð, ella verði efninu fargað. Nefndin leggur einnig áherslu á að mál sem snúa að flokkun og nýtingu jarðefna hljóti formlega afgreiðslu fagnefnda. Nefndin tekur fram að sérstaklega verði að gæta að hverfisvernduðu svæði á Vestursvæði Seltjarnarness sem víðtæk sátt hefur ríkt um í áratugi meðal bæjarbúa að vernda.


Önnur mál.

Næsti fundur fyrirhugaður þriðjudaginn 10. janúar.


Fundi slitið 11:08

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?