335. fundur Umhverfisnefndar haldinn í fundarherbergi Austurströnd 4, þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 8:15
Mættir: Grétar Dór Sigurðsson, Hannes T. Hafstein, Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir, Karen María Jónsdóttir og Stefán Bergmann
Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 2026030134 - Erindi frá golfklúbbnum - beiðni um leyfi til framkvæmda til að styðja við göngustíg.
Borist hefur erindi frá golfklúbbi Seltjarnarness sem óskar eftir að fá að taka við mold og nýta til að hækka landið innan við göngustíginn meðfram ströndinni til varnar gegn sjávarflóðum. Um er að ræða mold af KR-svæðinu sem er hrein samkvæmt umsækjanda.
Afgreiðsla: Umhverfisnefnd Seltjarnarness samþykkir framkvæmdina en vekur athygli á leigusamningi frá 2001 um landið þar sem er lögð áhersla á að halda skuli göngustíg meðfram strandlínu opnum fyrir umferð almennings og taka tillit til hennar. Í ljósi hverfisverndar svæðisins er skilyrt að umhverfisnefnd Golfkúbbsins leggi fram framkvæmdaáætlun árlega. Einnig yfirlit í lok árs til umhverfisnefndar Seltjanarnessbæjar um stöðu framkvæmda. Umhverfisnefnd gagnrýnir að ráðist hafi verið í framkvæmdir án leyfis sem áskilið er samkvæmt leigusamningi um landið. Byggingarfulltrúa er falið að tryggja að fullnægjandi gögnum verði skilað áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út.
2. 2025030013 - Fuglatalning og undirbúningur fyrir varp - skýrsla og kostnaðaráætlun talningar 2026
Nú líður að vori og tímabært að hefja undirbúning fyrir varp og minna á þau vorverk sem vinna þarf í því sambandi. Árið 2025 var í heildina nokkuð gott fyrir fuglalífið, þrátt fyrir fremur kalt vor og sumar.
Afgreiðsla: Skýrslan lögð fram og rædd. Ákveðið að fara í átak gegn skógarkerfli í Gróttu í samráði við Náttúruverndarstofnun í vor.
3. 2025050214 - Friðlýsing Gróttu - ferli eftir samþykkt bæjarstjórnar
Friðlýsing Gróttu var samþykkt á 1020. fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar og málinu vísað í lögbundinn farveg. Eftirfarandi bókun var meðal þess sem fram kom á fundinum:
Á vesturhluta Seltjarnarness eru einstæðar náttúruminjar og fjölbreytt fuglalíf. Þar er eitt fallegasta og fjölsóttasta útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu. Ósnortin náttúran myndar eitt samfellt vistkerfi sem gegnir lykilhlutverki fyrir varp, fæðuöflun og hvíld fugla. Friðlýsing Bakkatjarnar, Gróttu, og nú einnig Seltjarnar, er mikilvægur liður í því að varðveita þessi mikilvægu verðmæti. Í friðlýsingu felst ákvörðun okkar Seltirninga um að nýta svæðið í óbreyttri mynd til framtíðar og hindra á sama tíma að því verði raskað með óafturkræfum framkvæmdum. Friðlýsing Seltjarnar er hluti af aðalskipulagi bæjarins frá 2015-2033 og deiliskipulagi svæðisins auk þess sem Suðurnesið ásamt strandlengju er á náttúruminjaskrá samkvæmt lögum. Umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar hefur unnið á faglegan og þverpólitískan hátt að málinu í sex ár og nú liggur fyrir einróma tillaga nefndarinnar.
Afgreiðsla: Málið er komið í lögbundinn farveg.
4. 2024030006 - Stækkun bílastæðis við golfvöllinn
Golfvöllur Seltjarnarness hefur um nokkurt skeið óskað eftir að stækka bílastæði sitt við gólfskálann. Gerðar hafa verið tilraunir með mótvægisaðgerðir. Til er efni til verksins hjá bænum.
Afgreiðsla:
Meirihluti nefndarinnar, Stefán, Karen og Hannes hafna erindinu og leggja fram eftirfarandi bókun:
Kríuvarpið í Suðurnesi hefur farið hnignandi ár frá ári og á undir högg að sækja, þ.m.t. varplandið í Dal beint fyrir neðan bílastæðið eins og árlegar fuglatalningar Jóhanns Óla Hilmarssonar, fuglafræðings sýna á óyggjandi hátt. Umhverfisnefnd lagði út veglega sandfláka í tilraunaskyni fyrir neðan bílastæðið með það að markmiði að athuga hvort kríuvarpið færði sig frá núverandi varpsvæði sem golfklúbburinn hefur hug á að fari undir malbik, yfir á sandflákann. Í stuttu máli stóðst tilraunin ekki væntingar. Í deiliskipulagi fyrir svæðið er auk þess kveðið á um í hverfisverndarákvæði að viðhalda skuli vistkerfi svæðisins og styrkja það frekar eins og kostur er. Þá skal allri mannvirkjagerð haldið í lágmarki og er jarðrask með öllu óheimlt á svæðunu, nema því sem fylgir framkvæmdum sem tengjast viðhaldi og endurnýjun s.s. göngustíga. Hyggist bæjarstjórn leyfa framkvæmdir þá verður ákvörðun einungis tekin að undangenginni málsmeðferð í samræmi við ákvæði skipulagslaga. Umrætt varpsvæði nýtur hverfisverndar, er á náttúruminjaskrá og skrá um alþjóðleg fuglasvæði. Þá á kríuvarpið á undir högg að sækja, krían friðuð og á válista. Vegna þessa er ekki hægt að samþykkja að golfklúbburinn stækki bílastæðið
Formaður nefndarinnar lagði fram eftirfrandi bókun og situr hjá við afgreiðslu málsins:
Ekki hafa komið fram skýr gögn sem styðja þörf fyrir stækkun bílastæðisins eða sýnt fram á árangur af mótvægisaðgerðum.
Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir samþykkir erindið.
5. 2025020110 – Saurgerlavöktun og sýnataka neysluvatns
Mælingar á saurgerlum í strandsjó og skýrsla um sýnatöku úr neysluvatni lögð fram. Niðurstöður sýnatökunar uppfylla gæðakröfur neysluvatnsreglugerðar nr. 536/2001.
Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.
6. 2026030079 - Erindi um sánavagn við björgunarsveitarhúsið
Fyrirtækið Heildræn heilsa óskar eftir leyfi til að setja snyrtilegan sánavagn sunnan við björgunarsveitarhúsið. Umhverfisnefnd fjallaði nýlega um málið á fundi og skipulagsfulltrúi hefur óskað eftir umsögn frá björgunarsveitinni sem er húseigandi ásamt bæjarfélaginu en það á 40% hlut í húsinu.
Í erindinu segir að hugmyndin sé að starfsemin verði falin fyrir íbúum „bakvið“ björgunarsveitarhúsið. Þar segir líka að þetta svæði sé fullkomið fyrir svona sánu þar sem fólk gæti auðveldlega gengið niður rampinn að höfninni og kælt sig í sjónum á milli „setta“.
Afgreiðsla: Nefndin er jakvæð gagnvart erindinu og vísar málinu til skipulags- og umferðarnefndar.
7. 2025050214 - Sjóvarnargarðar - staða mála/viðgerðir á skörðum
Gert hefur verið við þau skörð sem komu í sjóvarnir í flóði fyrir réttu ári síðan, til bráðabirgða. Eitt skarð hefur verið lagað með endanlegum frágangi. Einnig er lögð fram skýrsla frá 2011 um sjóvarnir. Á blaðsíðu 126 er fjallað um Seltjarnarnes og það sem helst var á döfinni á þeim tíma. Einhver af verkefnunum sem fjallað er um voru framkvæmd en önnur ekki. Einnig er lagt fram kort sem sýnir lágsvæði við strendur bæjarins á grafískan hátt.
Afgreiðsla: Sviðstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.
Fundi lauk 10:02