Fara í efni

Umhverfisnefnd

336. fundur 05. maí 2026 kl. 08:15 - 09:00 fundarherbergi að Austurströnd 4, Seltjarnarnesi

336. fundur Umhverfisnefndar haldinn í fundarherbergi Austurströnd 4, þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 8:15

Mættir: Grétar Dór Sigurðsson, Hannes T. Hafstein, Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir, Karen María Jónsdóttir og Stefán Bergmann

Fundarritari: Gunnlaugur Jónasson skipulags- og byggingarfulltrúi

Dagskrá:

1. 2024110013 - Sýnataka neysluvatns í 7.4.2026

Lögð fram skýrsla um sýni sem tekið var úr neysluvatni þann 7.4.2026. Niðurstöður uppfylla gæðakröfur neysluvatnsreglugerðar nr. 536/2001.

Afgreiðsla: Lagt fram og rætt.

2. 2026030134 – Umsókn um viðbótarútfærslu á framkvæmdum við að styrkja göngustíga meðfram golfvellinum og lagfæra svæði sem hafa skemmst af grjóti vegna ágangs sjávar.     

Nýlegar framkvæmdir til varnar göngustíg og golfvelli fyrir ágangi sjávar hafa sýnt sig að hafa borið mjög góðan árangur að mati forsvarsmanna golfklúbbsins.

Nú er óskað eftir að setja samskonar varnir meðfram norðurströndinni að Seltjörn.

Afgreiðsla: Samþykkt. Byggingarfulltrúa er falið að tryggja að fullnægjandi gögnum verði skilað áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út. Lögð er áhersla á að halda skuli göngustíg meðfram strandlínu opnum fyrir umferð almennings og taka tillit til hennar meðan á framkvæmdinni stendur.

3. 2026050020 – Fuglatalning vorið 2026

Farið yfir stöðu málsins og kostnaðaráætlun lögð fram.

Afgreiðsla: Samþykkt að fela Jóhanni Óla að framkvæma fuglatalningu. Nefndin bendir á mikilvægi þess að samfella sé í fuglatalningu milli ára og óskar eftir áframhaldandi fjárveitingu bæjarráðs til málsins.

 

Fundi lauk 9:00

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?