Fara í efni

Umhverfisnefnd

06. maí 2015

256. fundur umhverfisnefndar Seltjarnarness haldinn þriðjudaginn 6. maí 2015 kl 16:00 í fundarherbergi bæjarstjórnar að Austurströnd 2.

Mætt: Margrét Pálsdóttir, Margrét Lind Ólafsdóttir, Guðmundur Jón Helgason, Elín Helga Guðmundsdóttir, Ragnhildur Ingólfsdóttir og Gísli Hermannsson sem skrifaði fundargerð.

Áheyrnarfulltrúi Ungmennaráðs:

Fundur settur: 16:05

Fyrir var tekið:

  1. Málsnúmer: 2014110033.

    Beiðni um umsögn umhverfisnefndar vegna verkefnislýsingar fyrir Valhúsahæð og aðliggjandi svæði.

    Umhverfisnefnd hefði gjarnan viljað fá tillögu að skipulagslýsingu Valhúsahæðar og aðliggjandi umhverfis, til umfjöllunar áður en tillagan var samþykkt í bæjarstjórn.

    Umhverfisnefnd áréttar að lokið verði við friðlýsingarferli svæðisins í kringum útsýnisskífu.

  2. Málsnúmer: 2014060035.

    Umræður umhverfisnefndar um tillögur á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi 2015 – 2033.

    Árni Geirsson frá Alta kom á fundinn og fór yfir lög um umhverfismat áætlana og lög um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

    Umhverfisnefnd mun óska eftir upplýsingafundi með skipulags- og umferðarnefnd.

  3. Málsnúmer: 2015020035.

    Hreinsunardagur.

    Hreinsunardagurinn verður laugardaginn 9. maí. Farið yfir verkefni dagsins.

  4. Málsnúmer: 2011030032.

    Garðaskoðun.

    Auglýst í Nesfréttum í júní og óskað eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir 7. júlí.

  5. Málsnúmer: 2011060004.

    Viðurkenningar til útskriftarnema í Valhúsaskóla.

    Ákveðið að veita þremur nemendum viðurkenningar.

  6. Önnur mál.

    MP og SÁ sóttu ársfund UST 17. apríl síðastliðin.

    MP og GJH sóttu fund Minjastofnunar Íslands 18. apríl undir fyrirsögninni Strandminjar í hættu-lífróður.

    Heimsókn í Sorpu föstudaginn 22.maí.

  7. Fundi slitið 18:15.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?