Fara í efni

Fyrsta áfanga byggingar nýs leikskóla lokið

Því var fagnað í vikunni að uppsteypu væri lokið á Undrabrekku og að húsið væri nú formlega komið undir þak. Framkvæmdin gengur vel og er á tímaáætlun.

Nú er glæsilegur áfangi í höfn í byggingu nýs leikskóla, Undrabrekku, þar sem húsið er formlega komið undir þak.

Um mikil tímamót var að ræða í framgangi þessa mikla verkefnis og af því tilefni bauð Aðalvík, þeim sem helst hafa komið að framkvæmdinni í reisugilli á verkstað í hádeginu, fimmtudaginn 7. maí sl. Starfsfólk leikskólans fékk þá t.a.m. tækifæri til að skoða og máta sig við húsnæðið sem er allt hið glæsilegasta en það mun hýsa átta leikskóladeildir. Það þótti virkilega tilkomumikið að fá að rölta um og skoða aðstæður á báðum hæðum leikskólans en rýmið er stórt, vítt er til veggja og hátt til lofts eins og meðfylgjandi myndir sýna, sem teknar voru á verkstað á fimmtudaginn.
 
Það að fagna verklokum uppsteypunnar og þessum 1. áfanga byggingar Undrabrekku gerði allt raunverulegra og var óneitanlega mikil gleðistund fyrir alla. Tímaáætlun framkvæmdarinnar hefur staðist eins og lagt var upp með og verktakarnir halda ótrauðir áfram. Þessa dagana er unnið að því að klára að glerja allt húsið til að loka því og steypuvinna við útisvæðið er að hefjast svo nokkuð sé nefnt. Allt verður því áfram á fullu enda rís húsið hratt eins og bæjarbúar hafa tekið eftir og götumyndin stöðugt að breytast en stefnt er að verklokum sumarið 2027.
 
Á FB síðu bæjarins má sjá fleiri myndir og brot úr ávarpi Þórs Sigurgeirssonar bæjarstjóra í tilefni tímamótanna. 
 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?