Fara í efni

17. júní á Seltjarnarnesi hátíðardagskrá frá kl. 10-15

Skrúðganga og fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Frítt í alla skemmtun og leiktæki. Allir velkomnir á 17. júní 2026 á Seltjarnarnesi.

HÁTÍÐARDAGSKRÁ Á 17. JÚNÍ 2026

Kl. 10-12 Bátasigling frá smábátahöfninni
Siglingafélagið Sigurfari og Björgunarsveitin Ársæll bjóða börnum í fylgd með fullorðnum upp á bátsferðir frá smábátahöfninni við Bakkavör. Björgunarvesti fyrir alla. Siglingar eru háðar veðurfari.

Kl. 11.00 Hátíðarguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari og Dr. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur flytur hugleiðingu. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Rótarýfélagar taka þátt í messunni og bjóða upp á kaffiveitingar í þjóðhátíðarstíl eftir messu í safnaðarheimilinu.

Kl. 12.45 Skrúðganga frá Leikskóla Seltjarnarness yfir í Bakkagarð
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness, trúðar, stultufólk og fánaberar í broddi fylkingar ásamt lögreglufylgd.

DAGSKRÁ Í BAKKAGARÐI HEFST KL. 13.00

    • Ari Páll Karlsson úr Krakkafréttum stýrir stemningunni.
    • Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar flytur hátíðarávarp.
    • Fjallkonan 2026 flytur frumsamið ljóð: Á Nesinu er best að búa.
    • Íþróttaálfurinn og Solla stirða mæta hoppandi hress.
    • Kristmundur Axel rapparinn vinsæli stígur á stokk.
    • Next Level danshópur DWC sýnir kraftmikil dansatriði.
    • Samsöngur, stemning og stuð með Ara Páli og Alexander Grybos.

 LEIKTÆKI OG STEMNING FRÁ KL. 13-15 – FRÍTT Í ÖLL TÆKI Í BAKKAGARÐI

  • Lazertagvöllur
  • Rennibraut, þrautabraut og hoppukastalar*
  • Vatnaboltar
  • Hestateymingar kl. 12.45 - 14.45
  • Andlitsmálning
  • Myndaspjöld
  • Kandífloss, blöðrur, fánar, þjóðhátíðarnammi, pylsur, popp, kaffi, gos og hvað eina!

Athugið!
Suðurströnd verður lokuð bílaumferð að hluta til, til kl. 16.30.
*Hoppukastalar eru háðir veðri og verða teknir niður ef of vindasamt eða blautt.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?