Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni vestan megin við Nesveg til móts við Eiðistorg lokuð frá kl. 12:00 þann 28/10 - 17:00 þann 30/10. Lokunin hefur ekki áhrif á ferðir almenningsvagna. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
Tímabundin lokun gönguleiðar við Nesveg til móts við Eiðistorg.
Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg frá kl. 12:00 þann 28. október til kl. 17:00 þann 30. október. Af þeim sökum verður:
Gönguleið innan grænu línunnar lokuð gangandi umferð í 8 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð bíla og almenningsvagna um Nesveg raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.
Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru beðnir að upplýsa börn sín.
Beðist er velvirðingar á ónæðinu.