Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni vestan megin við Nesveg til móts við Eiðistorg lokað tímabundið þriðjudaginn 29. september. Gönguleiðin verður lokuð frá 8 til 16. Lokunin hefur ekki áhrif á ferðir almenningsvagna. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
Tímabundin lokun gönguleiðar við Nesveg til móts við Eiðistorg.
Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg þriðjudaginn 29. september frá klukkan 8.00 - 16:00. Af þeim sökum verður:
Gönguleið innan grænu línunnar lokuð gangandi umferð í 8 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð bíla og almenningsvagna um Nesveg raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.
Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru beðnir að upplýsa börn sín.
Beðist er velvirðingar á ónæðinu.